HR stofan
Háskólinn í Reykjavík hitar upp fyrir HM í handbolta, með HR stofunni
Spáð í spilin fyrir HM í handbolta í HR stofunni
Háskólinn í Reykjavík hitar upp fyrir HM í handbolta með HR stofunni. Að vanda er það talnaspekingurinn og líkinda-gúrúinn Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, sem fer yfir spálíkan sem hann hefur gert fyrir mótið.
Peter gerði spálíkan fyrir EM í handbolta sem fram fór í Þýskalandi fyrra og spáði því að líklegast myndi Ísland enda í sjöunda til tólfta sæti. Svo fór að liðið lenti í 10. sæti og er spurning hvort að Peter reynist eins sannspár nú og þá.
Síðan munu þeir Patrekur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Pétursson, þjálfari landsliðs kvenna í handbolta, ræða við Kristján Halldórsson, kennara við íþróttafræðideild HR, um spána frá Peter, íslenska landsliðið, leikmennina og liðin sem Ísland mætir á mótinu.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.