HR Stofan 2026
Háskólinn í Reykjavík hitar upp fyrir EM í handbolta með HR Stofunni. Þar munu þeir Kristján Halldórsson, kennari við íþróttafræðideild HR, Patrekur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, ræða málin, spá í spilin og fara yfir spálíkan Dr. Peter O‘Donoghue, prófessors við íþróttafræðideild HR.
Peter hefur hingað til reynst mjög sannspár svo það verður spennandi að sjá hvort spár hans standast í ár.
Missið ekki af HR Stofunni og áfram Ísland !!!
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.