Nýnemadagar 2026
13.-14. ágúst
Nýnemadagar í stuttu máli:
- Nemendur sem eru að hefja nám í tölvunarfræði, sálfræði, íþróttafræði og tæknifræði mæta í deildarkynningu klukkan 11:00 fimmtudaginn 13. ágúst (sjá stofur hér að neðan). Eftir kynninguna verða nemendafélög í Sólinni að kynna dagskrá vetrarins.
- Nemendur sem eru að hefja nám í verkfræði, lögfræði og viðskipta- og hagfræði mæta klukkan 13:00 fimmtudaginn 13. ágúst (sjá stofur hér að neðan). Við hvetjum þessa nemendur til að koma snemma og kynna sér starfsemi nemendafélaganna áður en deildarkynning hefst.
- Fræðslufyrirlestrar fara fram milli 10:30 og 11:30 föstudaginn 14. ágúst. Í hádeginu verður boðið upp á pylsur, gos og almennt fjör.
Nýnemadagar fara fram dagana 13. - 14. ágúst í Háskólanum í Reykjavík. Á nýnemadögum eru nýnemar í grunnnámi við HR boðnir velkomnir með fjölbreyttri dagskrá.
Á nýnemadögunum fá nemendur að kynnast húsakynnum skólans, hitta kennara og samnemendur, starfsfólk deilda og annað starfsfólk HR. Auk þess geta nemendur kynnt sér fjölbreytta stoðþjónustu skólans, til dæmis bókasafnið, nemendaráðgjöf og alþjóðasvið.
Mæting er frjáls á alla viðburðina en við hvetjum nýnema til að mæta á sem flesta þeirra og hita upp fyrir komandi önn.
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST
Nemendur eftirfarandi deilda mæta á kynningar klukkan 11:00 og fá gagnlegar upplýsingar um skólaárið framundan:
- Tölvunarfræðideild - Stofa M101
- Sálfræðideild - Stofa V101
- Íþróttafræðideild - Stofa M103
- Tæknifræðideild - Stofa V102
Milli 11:30 og 13:00 verða nemendafélögin í HR í Sólinni að kynna starfsemi sína.
Við hvetjum þau sem eru á deildakynningum fyrir hádegi að staldra við og spjalla við nemendur og eins þau sem eru á kynningu eftir hádegi að koma fyrr.
Nemendur eftirfarandi deilda mæta á kynningar klukkan 13:00 og fá gagnlegar upplýsingar um skólaárið framundan:
- Verkfræðideild - Stofa M101
- Viðskipta- og hagfræðideild - Stofa V101
- Lagadeild – Stofa M103
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST
Fræðslufyrirlestrar fyrir alla nýnema grunnnáms hefjast klukkan 10:30 föstudaginn 14. ágúst. Nemendur á tæknisviði (tölvunarfræðideild, verkfræðideild og tæknifræðideild) mæta í stofu M101 og nemendur á samfélagssviði (lagadeild, íþróttafræðideild, viðskipta- og hagfræðideild og sálfræðideild) í stofu V101.
Að lokinni fræðslu verður pylsupartý í Sólinni, stúdentafélagið heldur uppi góðu stuði, hægt verður að kaupa HR peysu og boli, ganga um húsakynnin og rabba við nemendur og starfsfólk. Einnig verður hægt að fara í símaratleik til þess að kynnast aðstöðunni á skemmtilegan og lifandi hátt.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.