Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Persónuvernd, þagnarskylda og réttindi þolenda ofbeldis

Málstofa á vegum lagadeildar
20. apríl, 14:30 - 16:00
Háskólinn í Reykjavík - M209
Skrá í dagatal

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málþingi þann 20. apríl frá 14:30-16:00.

Á landssamráðsfundi um ofbeldi sem haldinn var 4. mars sl. í samstarfi félags- og húsnæðsmálaráðherra og embættis ríkislögreglustjóra komu fram ábendingar um að ríkjandi framkvæmd á sviði persónuverndar og beiting þagnarskylduákvæða fagstétta gæti komið í veg fyrir árangursríkt samstarf í þágu þolenda ofbeldis og fólks í viðkvæmri stöðu.

Á málþinginu verður fjallað um skörun persónuverndarlaga, þagnarskylduákvæða og annarra reglna sem koma í veg fyrir að upplýsingum um þolendur eða ætlaða þolendur ofbeldis berist á milli opinberra kerfa.

Áhersla verður lögð að þolendamiðaða nálgun og leiðir ræddar til þess að auka samstarfs lykilaðila án þess að brjóta gegn persónuvernd einstaklinga.

Fundarstjóri verður Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sérfræðingur í Mennta- og barnamálaráðuneytinu þau sem flytja erindi eru:

  • Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögreglustjóri á Suðurlandi - Öruggt Suðurland
  • Rögnvaldur G. Gunnarsson, yfirlögfræðingur Landspítalans - Þagnarskylda heilbrigðisstarfsmanna
  • Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður
  • Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð - af hverju er mikilvægt að það sé viðeigandi miðlun upplysinga á milli kerfa frá sjónarhóli þolenda

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst