Vísindavaka 2025
Vísindavaka 2025 verður haldin í Laugardalshöllinni laugardaginn 27. september. Háskólinn í Reykjavík mun kynna þar fjöldamörg verkefni og rannsóknir og vísindamenn leyfa gestum að prófa tæki og tól sem þeir nota í sínum daglegu störfum.
Á Vísindavöku verður að vanda spennandi framboð frá Háskólanum í Reykjavík. Þar býðst yngstu kynslóðinni að spreyta sig á ýmsum verkefnum og finna út hvar þeirra hæfileikar til að skapa framtíðina liggja.
Hjá SKEMA býðst m.a. að hanna HR í Minecraft, sameina tónlist og forritun, læra grunn í tölvuleikjagerð og stjórna vélmenni. Nemendur í RU racing sjá um að gera alla klára fyrir formúluna og Systur sjá um forritunarkennslu. Hjá RU robotics færðu að sjá vísindin við hönnun vélmenna og frostbyte sýnir þér hversu auðvelt er að hakka þitt heimili og hvernig megi bregðast við því. Þá munu fulltrúar íþróttafræðideildar leyfa gestum að prófa mælingarbúnað sem mælir hversu hátt þú getur stokkið og hversu fast þú getur gripið.
Hlökkum til að skapa framtíðina með þér!
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.