Vitinn
Samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
Vitinn er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og hefur verið haldin árlega síðan árið 2015. Keppnin er opin öllum nemendum HR, þvert á deildir í grunnnámi og/eða meistaranámi.
Keppnin í ár fer fram dagana 11. - 14. febrúar og hefst skráning í keppninga þriðjudaginn 27. janúar.
Setningarathöfn 11. febrúar
- Miðvikudaginn 11. Febrúar kl. 09:00 - 10:30 í stofu V101.
- Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjóri viðburða í HR fer með fundarstjórn.
- Til máls taka Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti tæknisviðs í HR
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
- Haraldur Haraldsson, sölu- og markaðsstjóri Icelandair Cargo
- Karl Hjármarsson, markaðs- og samskiptastjóri Iceland Seafood
- Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild HR. Valdimar er höfundur áskoruninnar og mun hann fara yfir helstu þætti hennar.
- Eftir formlega dagskrá gest þátttakendum tækifæri til að spyrja spurninga út í áskorunina og Iceland Seafood.
- Boðið verður upp á léttar veitingar.
Úrslitadagur 14. febrúar
- Laugardaginn 14. febrúar fer fram úrslitadagur Vitans. Liðin mæta í stofu V102 og kynna úrlausn sína fyrir dómnefnd.
- Í dómnefnd í ár sitja:
- Jóhann Fjalar Skaptason, viðskiptastjóri Icelandair Cargo
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs HR
- Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild HR
- Neil Shiran Þórisson, f.h. Iceland Seafood.
- Nemendur fá 10 mínútur til að kynna og taka svo á móti spurningum frá dómnefnd.
Úrslit verða svo tilkynnt í Sólinni seinna um daginn.
Liðin kynna í eftirfarandi röð:
| Tími | Lið |
|---|---|
| Kl. 13:15 | Knarrarót |
| Kl. 13:30 | KOST |
| Kl. 13:45 | Haf-Lausnir |
| Kl. 14:00 | Vitanlega |
| Kl. 14:15 | Taktíkin |
| Kl. 14:30 | Kaffipása fyrir dómnefnd |
| Kl. 15:00 | LP Simplex |
| Kl. 15:15 | STRAUMUR |
| Kl. 15:30 | Artic Revolution |
| Kl. 15:45 | Norðurperlurnar |
| Kl. 16:00 | Kantur |
| Kl. 16:15 | Leiðarljósið |
- Kokteill og tengslamyndun í Sólinni hefst kl. 16:30.
- Öll lið munu fá útprentun af sínum úrlausnum og hengja sínar úrlausnir upp á þar til merkt svæði í Sólinni.
- Notið er veitinga á meðan beðið er eftir dómnefnd sem mætir kl. 17:30 og tilkynnir úrslit.
- Vinningshafar hljóta að verðlaunum fyrirfram skipulagða ferð til Barcelona með fulltrúum Háskólans. Einnig verða veitt verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina.
Allt um Vitann hér: https://www.ru.is/namid/hr-plus/vitinn
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.