Lögfræði með -viðskiptafræði
Hvað læri ég?
Nám sem veitir nemendum næga grunnþekkingu í lögfræði til að halda áfram sérhæfingu í meistaranámi í lögfræði og haldgóða þekkingu sem getur fullnægt skilyrðum fyrir meistaranám á ákveðnum brautum í viðskiptafræði.
BA- og BSc-gráða á fjórum árum
Nemendur geta bætt við sig einu auka ári í viðskiptafræði eftir útskrift og lokið tveimur námsgráðum á fjórum árum; BA í lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein og BSc í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein.
Hvernig læri ég?
Fyrstu tvö árin eru eins og í BA-námi í lögfræði en á þriðja árinu taka við námskeið í viðskiptafræði auk eins skyldunámskeiðs í lögfræði.
Námið er verkefnatengt
Nemendur öðlast traustan, fræðilegan grunn en eru líka virkjaðir til þátttöku. Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar og nemendur ljúka m.a. málflutningsnámskeiði og námskeiði í nýsköpun.
Ekki bara próf
Árangur nemenda er metinn með ýmsum hætti og ekki eingöngu með prófum. Miðanna- og lokapróf gilda að hámarki 60% af heildarnámsmati í einstökum námskeiðum.
Dæmatímar
Nemendur á fyrsta ári geta tekið þátt í dæmatímum þar sem meistaranemar aðstoða þá og þjálfa til að efla skilning og fræðilega þekkingu þeirra á efninu.
Smærri hópar í kennslu
Kennslan fer fram í smærri hópum og minni áhersla er á fyrirlestra. Nemendur fá vandaða endurgjöf. Kennarar hvetja til umræðu og þjálfa nemendur með því að láta þá fást við raunhæf verkefni í tímum.
Námsferð til Brussel
Nemendum í námskeiðinu Evrópuréttur stendur til boða að fara til Brussel þar sem þeir kynnast starfsemi Evrópusambandsins með heimsóknum til meðal annars EFTA, framkvæmdastjórnarinnar, ráðherraráðsins og á lögmannsstofur.
Starfsnám í meistaranámi
Starfsnám er ekki í boði í BA-námi en hægt er að sækja um starfsnám í meistaranámi í lögfræði.
Ertu með spurningar um námið?
Að námi loknu
Út í atvinnulífið
Að loknu námi eiga nemendur að geta:
- Greint lögfræðileg álitaefni og leyst úr þeim með rökstuddum hætti.
- Skipulagt og stofnað eigin rekstur, þróað viðskiptahugmyndir og byggt upp viðskiptaáætlun.
- Sett sér markmið og fylgt verkáætlunum, tekið virkan þátt í samstarfi og leitt verkhópa.
- Dregið fram og greint stöðu efnahagsmála að ákveðnu marki.
- Gagnrýnt og leyst viðfangsefni í rekstri og stjórnun skipulagsheilda að ákveðnu marki.
- Hafi næga þekkingu og þjálfun til lögfræðistarfa og til þess að hefja ML-nám og meistaranám á ákveðnum sviðum viðskiptafræði.
Tvær gráður á fjórum árum
Nemendum gefst kostur á að bæta við sig einu auka ári í viðskiptafræði eftir útskrift og ljúka þannig tveimur námsgráðum á fjórum árum.
Nemandinn útskrifast þannig fyrst úr lagadeild, skráir sig svo í viðskiptadeild og útskrifast þaðan líka, sem sagt úr báðum deildum á sitthvoru árinu.
Meistaranám í lögfræði
Þeir sem ljúka meistaranámi við lagadeild að undangengnu grunnnámi í lögfræði, og a.m.k. 240 einingum í lögfræðigreinum, hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda. Lögfræði er því í heildina fimm ára nám.
Starfsvettvangur lögfræðinga
Störf lögfræðinga eru mjög fjölbreytt; þeir starfa til dæmis á lögmannsstofum, hjá Alþingi og dómstólum, ráðuneytum, embætti ríkislögreglustjóra, alþjóðastofnunum, skatta- og tollayfirvöldum, hjá fjármálafyrirtækjum, þjónustufyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum og útflutningsfyrirtækjum, svo dæmi séu nefnd.
Skipulag náms
Þriggja vikna námskeið í lögfræði
Aðstaða
Málflutningur í dómsal
Lagadeild hefur til umráða fullbúinn dómsal sem hannaður er frá grunni og innréttaður sem slíkur. Stofan þjónar m.a. þeim tilgangi að þjálfa nemendur í störfum dómara og lögmanna. Í dómsalnum er fullkominn tölvubúnaður, hljóðkerfi og fjórar tökuvélar sem taka upp hljóð og mynd.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Sérsvið: Evrópuréttur, evrópskur stjórnskipunarréttur, mannréttindi, stjórnsýsluréttur, lyfjaréttur og réttarheimspeki
Sérsvið: Stjórnskipunarréttur, stjórnsýsluréttur, upplýsingaréttur og opinber starfsmannaréttur
Sérsvið: Bótaréttur, sjó- og flutningaréttur
Sérsvið: Stjórnsýsluréttur, stjórnskipunarréttur, mannréttindi, aðferðafræði og réttarheimspeki
Sérsvið: Fjölmiðlaréttur, Neytendaréttur, Réttarfar, Fjármunaréttur og Mannréttindi.
Sérsvið: Einkamálaréttarfar, málflutningur, samkeppnisréttur og fjarskiptaréttur
Sérsvið: Stjórnarhættir, félagaréttur, sjálfbærni og réttarumhverfi fjármálafyrirtækja
Sérsvið: Réttarfar og fjármunaréttur
Sérsvið: Evrópuréttur og stjórnsýsluréttur.
Sérsvið: Stjórnsýsluréttur, einkamála- og sakamálaréttarfar, skattaréttur, vinnuréttur, persónuvernd, evrópuréttur, fjármunaréttur og almenn lögfræði
Sérsvið: Þjóðaréttur, hafréttur, alþjóðlegur umhverfisréttur og loftlagsréttur
LinkedIn/Researchgate/Orcid
Sérsvið: Refsiréttur
Stundakennarar
Af hverju lögfræði í HR?
- Verkefnatengt laganám, með þjálfun í lausn raunhæfra verkefna.
- Góður fræðilegur grunnur með öflugum kennurum.
- Námsmat er fjölbreytt: miðanna- og lokapróf í grunnnámi gilda að hámarki 60% af heildarnámsmati í einstökum námskeiðum og 50% í meistaranámi.
- Í BA-náminu er kennt í um 60 manna hópum, að meðaltali.
- Í ML-náminu er kennt í hópum með færri en 20 nemendur, að meðaltali.