Námið
Rannsóknir
HR
Tölvunarfræðideild

Tölvunarfræði með-
viðskiptafræði

Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Tölvunarfræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég

Þessi námsbraut samtvinnar þekkingu í tölvunarfræði og viðskiptafræði með það að markmiði að nemendur öðlist þekkingu á stjórnun og rekstri fyrirtækja auk tæknilegrar kunnáttu. Atvinnulífið hefur kallað eftir starfsfólki með menntun í bæði tölvunarfræði og viðskiptafræði.

Nám í tölvunarfræði hentar þeim sem hafa til að mynda áhuga á að hanna hugbúnað og vefsíður, þróa tölvuleiki, glíma við stærðfræði, læra forritun og margt fleira. Tölvunarfræði, rétt eins og viðskiptafræði, er fjölbreytt og lifandi grein sem skarast við ýmis önnur fræðasvið eins og stærðfræði, sálfræði, verkfræði og lífupplýsingafræði. Möguleikarnir sem þessi námsbraut býður upp á eru því ótal margir. Nám til BSc-prófs í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein er 180 ECTS nám og tekur þrjú ár. 

Að námi loknu eiga nemendur að hafa þekkingu á:

  • Undirstöðugreinum eins og stærðfræði, tölfræði, rekstrar- og fjárhagsbókhaldi, reikningshaldi, hagfræði, fjármálum, upplýsingatækni, stjórnun og markaðsfræði.
  • Aðferðum sem er beitt við greiningu og úrvinnslu gagna.
  • Kunna grundvallaratriði á sviði hugbúnaðargerðar: greiningu hugbúnaðar, hönnun, forritun og prófanir.
  • Þekkja hvernig þróa á mismunandi hugbúnaðarkerfi innan faggreina.
  • Þekki grundvallaratriði við hagnýtingu innan upplýsingatækni, þar með talið upplýsingastjórnun og greind kerfi.

Hvernig læri ég?

Áhersla í náminu er á raunhæf verkefni. Kennt er eftir 12+3 fyrirkomulaginu þar sem námskeið eru kennd í 12 vikur með námsmati í lokin. Að því loknu taka við þriggja vikna hagnýtir áfangar.

Nemendur sækja bæði fyrirlestra og verklega dæmatíma. Upptökur af fyrirlestrum í mörgum skylduáföngum eru aðgengilegir í kennslukerfi á netinu.

Nemendur taka þátt í hópavinnu, frumkvöðlastarfi og samstarfi milli deilda. Þannig fá þeir góðan undirbúning fyrir atvinnulífið og hafa hlotið þjálfun sem gerir þá í stakk búna til að stofna eigið fyrirtæki.

Gestafyrirlesarar

Á hverju ári koma 60–80 gestafyrirlesarar úr atvinnulífinu að kennslu. 

Nýsköpun og stofnun fyrirtækja

Nemendur í grunnnámi ljúka þriggja vikna námskeiði sem heitir Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Þar eiga þeir að finna viðskiptahugmynd og gera viðskiptaáætlun. Nemendur kynnast því nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, gerð viðskiptaáætlunar og þverfaglegri samvinnu strax í upphafi námsins. Þeir kynna verkefnið reglulega með svokölluðum lyftukynningum þar sem ein mínúta gefst til að þess að „selja“ hugmyndina hugsanlegum fjárfestum.  

Starfsnám

Nemendur geta sótt um að fara í starfsnám til hinnar virtu Fraunhofer-rannsóknarstofnunar, í Maryland í Bandaríkjunum. Starfsnámið er metið til eininga. Við Fraunhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við ýmsar stofnanir og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu. Nemendur fá greidd laun meðan á starfsnáminu stendur sem yfirleitt tekur sex mánuði.

Lokaverkefni með atvinnulífinu

Lokaverkefni nemenda í BSc-námi eru hópverkefni sem unnin eru í samstarfi við kennara og oftast í samvinnu við fyrirtæki. Undanfarin ár hafa nemendur unnið verkefni fyrir Icelandair, Advania, Minjastofnun, Marel, Tempo, Netorku, Össur, Valitor, Neyðarlínuna og Landspítalann.

Að námi loknu

Lögverndað starfsheiti

Nemendur öðlast réttindi til að nota lögverndaða starfsheitið tölvunarfræðingur að loknu námi. 

Fjölbreytt störf

Útskrifaðir nemendur starfa meðal annars við greiningu og hönnun kerfa, vef- og viðmótshönnun, forritun, gæðaprófanir og fleira. Í BSc-námi við tölvunarfræðideild er lögð áhersla á raunhæf verkefni sem eru góð þjálfun fyrir slík störf að námi loknu.

Meistaranám

Með því að ljúka meistaranámi (MSc) í framhaldi af grunnnámi (BSc) geta nemendur náð enn betra forskoti á vinnumarkaði, sérstaklega ef viðkomandi vill sinna stjórnunarstöðu. 

Ertu með spurningar um námið?

Skipulag náms

Til að ljúka BSc gráðu í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein þarf að ljúka 180 ECTS einingum. Hvert námskeið er 6 ECTS einingar, nema lokaverkefni sem er 12 ECTS einingar. Dæmi um hvernig nám í staðarnámi er skipulagt má sjá í meðfylgjandi töflu, en raða má námskeiðum á annan hátt ef undanfarareglum er fylgt.

Undanfarar

Undanfara má sjá í kennsluskrá. Nemendur sem hafa ekki lokið undanfara námskeiða mega eiga von á því að vera skráðir úr námskeiðinu án frekari viðvörunar enda er það á ábyrgð nemenda að undanfarar séu uppfylltir.

Haust
Forritun
T-111-PROG / 6 ECTS
Strjál stærðfræði I
T-117-STR1 / 6 ECTS
Greining og hönnun hugbúnaðar
T-216-GHOH / 6 ECTS
Tölvuhögun
T-107-TOLH / 6 ECTS
Verklegt námskeið 1
T-113-VLN1 / 6 ECTS
Vor
Strjál stærðfræði II
T-419-STR2 / 6 ECTS
Gagnaskipan
T-201-GSKI / 6 ECTS
Vefforritun
T-213-VEFF / 6 ECTS
Gagnasafnsfræði
T-202-GAG1 / 6 ECTS
Verklegt námskeið 2
T-220-VLN2 / 6 ECTS

Þriggja vikna námskeið

Nýsköpun og stofnun fyrirtækja
Verklegt námskeið I
Verklegt námskeið II
Námstími
3 ár
Einingar
180 ECTS
Prófgráða
BSc
Lögverndað starfsheiti
Tölvunarfræðingur
Skiptinám mögulegt
Fjarnám mögulegt
Nei
ASIIN/EQANIE
Alþjóðleg vottun 

BSc-námið í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein við HR hefur þá sérstöðu hér á landi að það hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun (ASIIN).

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Í háskólabyggingu HR er aðstaða til verklegrar kennslu, rannsókna, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur. 

Kennslustofur og lesherbergi

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Nemendur í tölvunarfræði læra oft saman á ákveðnu svæði í Sólinni. 

Ný þekking verður til

Aðstaða til rannsókna innan tölvunarfræði í HR er afar góð en þær fara að verulegu leyti fram innan sérstakra rannsóknarsetra. Setrin vinna jafnframt að rannsóknum í samstarfi við innlenda og erlenda háskóla, fyrirtæki og stofnanir.

Gervigreindarsetur - CADIA

HR stendur framarlega á heimsvísu í rannsóknum í gervigreind. Þeir nemendur sem gera verkefni og stunda rannsóknir með vísindamönnum Gervigreindarseturs HR, CADIA, hafa afnot af aðstöðu setursins fyrir tilraunir og sérstaka þróun í margmiðlunartilraunaherbergi sem kallað er Svartholið. Þar eru margskonar tæki sem nýta má í samskiptum fólks og tölva, eins og sýndarveruleikabúnaður (Oculus Rift og HTC Vive), risaskjár (3m x 2m), tölvusjón (Kinect), stefnuvirkir hljóðnemar, tölvustýrð LED-lýsing, hátalarakerfi og hljóðblandari svo að fátt eitt sé nefnt. Hægt er að bóka herbergið vegna verkefnavinnu eða tilrauna.

Þar er líka aðstaða fyrir hópavinnu nemenda og starfsmanna á öllum námsstigum. Þar eru borð (flestum úthlutað á hverri önn, en líka borð sem nemendur geta notað hluta vikunnar), geymsluaðstaða (skúffur, hillur, kassar), grunn tækjabúnaður (skjáir, snúrur osfr.) og svo tússtöflur og afþreyingaraðstaða (sófi og leikjavélar).

Þjónusta 

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu. 

Verslanir og kaffihús

Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Af hverju tölvunarfræði í HR?

  • Langar þig að finna nýjar lausnir fyrir samfélag framtíðarinnar?
  • Ertu skapandi og hugmyndarík(ur)?
  • Viltu geta greint gögn og nýtt þau?
  • Raunhæf verkefni
  • Sterk tengsl við atvinnulífið
  • Kennt er í 12 vikur og svo taka við þriggja vikna hagnýt verkefni
  • Alþjóðlega vottað nám
  • Lokaverkefni með rannsóknaáherslu í samstarfi við fyrirtæki eða vísindamenn HR
  • Allt nám fer fram í Háskólanum í Reykjavík
Fara efst