Heilbrigðis-verkfræði
Hvað læri ég?
Námið undirbýr verðandi verkfræðinga fyrir framsækin störf við að þróa ný tæki og aðferðir við greiningu og meðferð sjúkdóma og að beita verkfræðilegum aðferðum í líffræði og læknisfræði.
Meðal annars er fengist við; Heilarafrit gervilíffæri, greinda gervifætur, tölvusneiðmyndir, geislameðferð og stærðfræðileg líkön.
Í náminu sameinast ólíkar greinar eins og stærðfræði og eðlisfræði við lífeðlisfræði, allt í þeim tilgangi að leysa vandamál vegna veikinda og slysa. Nám í heilbrigðisverkfræði samanstendur af þriggja ára BSc-námi og tveggja ára MSc-námi.
Fimm ára nám
Verkfræði er í heildina fimm ára nám og 300 ECTS. Nemendur öðlast löggilt starfsheiti sem verkfræðingar eftir bæði BSc- og MSc-nám.

Hvernig læri ég?
Undirstöðunámskeið
Á öllum námsleiðum í verkfræði eru fyrstu annir námsins helgaðar undirstöðunámskeiðum sem nýtast verkfræðingum alla starfsævina. Að námskeiðunum loknum hafa nemendur góða þekkingu á:
- Stærðfræði
- Eðlisfræði
- Forritun
- Verkefnastjórnun
- Sjálfbærni
Sérhæfð námskeið
Eftir fyrsta árið er námið sífellt meira sniðið að hverri og einni námsleið. Sérhæfð námskeið námsleiðarinnar byggja undir meiri sérhæfingu.
Sérhæfð námskeið í heilbrigðisverkfræði eru t.d:
- Greining rása
- Sameinda- og frumulíffræði
- Lífeðlisfræði
- Mælitækni og lífsmörk
- Læknisfræðileg myndgerð
Verkfræði X
Á sjöttu önn BSc-náms ljúka allir nemendur í verkfræði viðamiklu lokanámskeiði. Í námskeiðinu vinna nemendur verkefni í hópum þar sem að unnið er frá hugmynd að lokaafurð. Viðfangsefnin eru ýmist sérsniðin vekefni fyrir mismunandi námsleiðir eða unnið þvert á þær. Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir atvinnulífið.
Áhersla á sjálfbærni
Málefni sjálfbærni og umhverfis eru sífellt mikilvægari í okkar umhverfi. Í verkfræðináminu er brugðist við þessu í þremur skyldunámskeiðum. Á fyrstu önn fara allir verkfræðinemar í námskeið um orkunýtingu og í námskeiðinu "Inngangur að verkfræði" er áhersla á sjálfbærni og umhverfi. Á fimmtu önn er svo sérstakt námskeið um sjálfbærni. Auk þessa eru umhverfismál tengd við umfjöllunarefni annarra námskeiða.
Val
Nemendur geta valið sér námskeið eftir áhugasviði t.d. starfsnám, námskeið úr öðrum námsleiðum verkfræðinnar eða úr öðrum deildum HR.
12+3 kerfið
Í náminu eru annirnar brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið við þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.
Starfsnám
Nemendur geta sótt um 6 ECTS starfsnám á síðasta ári BSc-námsins. Líkt er eftir atvinnuleit þar sem nemendur senda inn ferilskrá og kynningarbréf og fyrirtækin velja úr hópi umsækjenda og boða í viðtöl.
Markmið með starfsnámi er m.a. að efla tengsl nemenda tækni- og verkfræðideildar HR við atvinnulífið, auka innsýn og skilning nemenda á viðfangsefnum síns fagsviðs og undirbúa þá undir störf að loknu námi með úrlausn raunhæfra viðfangsefna á vettvangi.
Skiptinám
Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða hærra í meðaleinkunn og að hafa lokið 60 einingum þegar þeir fara í skiptinámið. Alþjóðaskrifstofa veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Klúbbastarf
Nemendur geta tekið þátt í alls konar starfi sem tengist verkfræðinni t.d. verið í Formúlu-liði skólans (RU Racing), róbótaklúbbnum eða teki
Í HR fá verkfræðinemar ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál og læra á hönnunarferlið allt frá hugmynd, hönnun og smíði að virkni.
Að námi loknu
Starfsvettvangur
Hátækni í heilbrigðisþjónustu er starfsvettvangur margra heilbrigðisverkfræðinga. Í fjölmörgum fyrirtækjum bæði hér á landi og erlendis er þróuð ný tækni og horft til framtíðar. Þróun tækja og tækni byggir iðulega á nýjustu niðurstöðum rannsókna vísindanna úr ýmsum greinum heilbrigðis- og raunvísinda.
Starfsréttindi
Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc námi. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Ertu með spurningar um námið?
Skipulag náms
Þriggja vikna námskeið
Aðstaða
Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar. Meðal tækja í HR sem notuð eru við kennslu í heilbrigðisverkfræði er 256-rása heilariti (EEG), súrefnisupptökutæki, búnaður til þráðlausrar upptöku á vöðvaritum (EMG) og aðstaða til geislamælinga. Auk þess hafa nemendur aðgang að efnafræðistofu og í sumum tilvikum aðstöðu í kjallara háskólabyggingarinnar fyrir stærri verkefni.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá frekari upplýsingar um aðstöðuna í HR.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Af hverju heilbrigðisverkfræði í HR?
- Kennt er í 12 vikur og svo tekur við þriggja vikna hagnýtur áfangi.
- Markviss verkefnavinna með raunverulegum viðfangsefnum.
- Líkt eftir atvinnulífinu: nemendur ljúka hinu viðamikla verkfræði X námskeiði.
- Frábær aðstaða fyrir verklegt og bóklegt nám.
- Góður stuðningur í námi frá hjá náms- og starfsráðgjöfum, starfsfólki bókasafns, skrifstofum deilda og kennurum.
- Allar námsleiðir eru í boði sem samfellt fimm ára nám (BSc & MSc).
- Nemendur hljóta þekkingu í raungreinum og þjálfun í aðferðafræði og vinnubrögðum sem gagnast til framtíðar.
- Möguleiki á starfsnámi
- Nemendur geta sótt um leigu á herbergi eða íbúð í Háskólagörðum HR sem eru við rætur Öskjuhlíðar.
- Allt nám undir einu þaki.