Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
14. september 2026

Alþjóðasvið HR á EAIE-ráðstefnunni í Glasgow

Starfsfólk alþjóðasviðs Háskólans í Reykjavík sótti nýverið árlega ráðstefnu European Association for International Education, EAIE, sem fram fór í Glasgow í Skotlandi undir yfirskriftinni Rhythm of Revolution. Ráðstefnan er einn stærsti og mikilvægasti vettvangur Evrópu fyrir alþjóðastarf háskóla.

Meginþema ráðstefnunnar var hvernig háskólar geta brugðist við örum breytingum í alþjóðlegu starfsumhverfi. Þar var meðal annars fjallað um áhrif geópólitískra sviptinga og óvissu í alþjóðamálum á háskólasamstarf og hreyfanleika nemenda og starfsfólks milli landa. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að háskólar byggi upp sveigjanlegt og öflugt alþjóðastarf sem geti staðist áföll og lagað sig að breyttum aðstæðum.

Þátttakendur frá HR voru verkefnastjórarnir Halldór Mikael Halldórsson, Alexandra Ýr van Erven og Hrafnhildur Ylfa Magnúsardóttir ásamt Guðlaugu Matthildi Jakobsdóttur forstöðukonu alþjóðasviðs.[

Á málstofum um nemendaskipti var sjónum meðal annars beint að sveigjanlegri tegundum námsdvalar, stafrænum lausnum, viðurkenningu náms og leiðum til að gera alþjóðlega reynslu aðgengilega fleiri nemendum. Einnig var rætt um breyttar væntingar nemenda, gæði þjónustu og hvernig gervigreind hefur sífellt meiri áhrif á það hvernig verðandi nemendur afla sér upplýsinga, velja sér háskóla og námsland. Skýrar, aðgengilegar og uppfærðar upplýsingar á heimasíðum háskóla verða því sífellt mikilvægari.

Einstakt tækifæri til að styrkja tengsl

Evrópsk háskólanet voru einnig áberandi í dagskránni. Þar var rætt um hvernig slík samstarfsnet geta stuðlað að sameiginlegu námi, auknum hreyfanleika, nýsköpun og nánari tengslum milli háskóla. Um leið þarf að huga vel að stjórnskipulagi, ábyrgð, fjármögnun og því hvernig samstarfið er fest í sessi innan hvers háskóla. Starfsfólk Alþjóðasviðs hitti jafnframt kollega frá NeurotechEU, sem er háskólanetið sem HR er hluti af.

Rétt fyrir ráðstefnuna fór hluti hópsins í tveggja daga heimsókn til University of Glasgow, sem er samstarfsskóli HR. Samkvæmt þátttakendum var heimsóknin bæði fróðleg og gagnleg og veitti þeim tækifæri til að kynnast starfsemi skólans og ræða sameiginleg viðfangsefni í alþjóðastarfi. Hluti hópsins fór einnig í kynningarheimsókn til University of St. Andrews.

Hrafnhildur Ylfa, Alexandra Ýr og Halldór Mikael ásamt erlendum kollegum sínum.

Á ráðstefnunni átti hópurinn frá HR fjölda funda, bæði með núverandi samstarfsskólum HR og fulltrúum háskóla sem hafa áhuga á að hefja samstarf.

„EAIE-ráðstefnan er þannig ekki aðeins mikilvægur vettvangur þekkingarmiðlunar heldur einnig einstakt tækifæri til að styrkja tengsl við samstarfsskóla, byggja upp ný sambönd og fylgjast með nýjungum og góðum starfsvenjum í alþjóðasamstarfi, skiptinámi og stefnumiðuðu alþjóðastarfi háskóla,“ segir Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðukona alþjóðasviðs HR.

14. september 2026
Nýjustu fréttirnar