Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
2. nóvember 2026

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík í Hörpu 

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram í Silfurbergi í Hörpu 31. október sl. Úskriftarnemendur voru 98 talsins, þar af útskrifuðust 91 nemandi með meistaragráðu, fjórir með doktorsgráðu, tveir með BSc gráðu og einn með diplómu.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, flytur ávarp.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor Haskólans í Reykjavík, fjallaði í ávarpi sínu um að jafnvægið milli þátta eins og að vekja forvitni, aðferðir til að komast að vísindalegum niðurstöðum, gagnrýnnar hugsunar, færni í samvinnu, þekkingar á námssviði og þjálfunar fyrir atvinnulífið væri ekki sjálfgefið og ekki endilega það sama milli námsstiga. Þá bætti hún við að jafnvægið væri í sífelldri endurskoðun, eftir breytingum í þjóðfélaginu: „Eitt af því sem þróun gervigreindar hefur gert er að fleiri hafa myndað sér, og þróað, -skoðanir sínar varðandi nákvæmlega þetta jafnvægi. Við finnum fyrir miklu minni óþolinmæði gagnvart þeim þáttum námsleiða sem snúa að gagnrýninni hugsun og færni í samvinnu heldur en fyrir bara tveimur árum. Við erum nefnilega öll, í vinnunni og í hversdeginum, að reyna að átta okkur á því hvert þróunin stefnir.  Að sama skapi eru vinnuveitendur nú, margir, minna uppteknir af þekkingu sem er komin inn í kollinn á fólki heldur en því að fólk kunni að finna þekkingu og tileinka sér hana,“ sagði Ragnhildur.

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir flytur ræðu fyrir hönd útskriftarnema.

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Hún talaði um hvað það væri mikilvægt að elta drauma sína og að leið fólks að háskólanámi væri ekki alltaf eins: „Þessi skóli hefur veitt mér tækifæri sem aðrir voru ekki tilbúnir að veita mér,  þannig að ég gæti fylgt því eftir að skapa farsæla framtíð fyrir okkur mæðgur. Án þess tækifæris sem skólinn veitti mér stæði ég ekki hér í dag. Námið hefur kennt mér að halda alltaf áfram, læra meira og þróast meðfram þekkingu. Nám getur opnað dyr sem standa þér ekki endilega opnar í því félagslega umhverfi sem þú fæðist í,“ sagði Hjördís Líney. 

Um tónlistarflutning sáu þau Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta stýrði athöfn. 

Ávarp rektors í heild sinni má finna hér.

2. nóvember 2026
Nýjustu fréttirnar