Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
21. júní 2026

Brautskráning frá HR í Eldborg

Hátíðleg stemmning sveif yfir vötnum í Hörpu á laugardaginn 20. júní sl. þegar 720 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík.

Tvær athafnir fóru fram í Eldborg og var útskrifað af tæknisviði fyrir hádegi og samfélagssviði eftir hádegi.

Útskriftarnemar af tæknisviði.

Af tæknisviði útskrifuðust 373 nemendur, 311 úr grunnámi og 57 úr meistaranámi. Af samfélagssviði útskrifuðust 348 nemendur, 245 úr grunnámi og 103 úr meistaranámi. Alls luku fjórir nemendur doktorsnámi, tveir úr tölvunarfræðideild og tveir úr verkfræðideild.

Útskriftarnemar af samfélagssviði.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp og talaði um raunveruleikann og mikilvægi þess að nýta menntunina til að greina á milli raunveruleika og viðurkenndrar vísindalegrar þekkingar annars vegar og hins vegar skoðana og trúaratriða.

Ragnhildur Helgadóttir.

Hún vitnaði í sænska lækninn Hans Rosling sem skrifaði bókina Factfulness (sem hefur komið út á íslensku undir titlinum „Raunvitund”) og er um „The secret, silent miracle of human progress” sem er að mestu um framfarir sem við öll og vestrænir fjölmiðlar horfum framhjá: „Ég hvet ykkur þannig til að nýta menntunina ykkar til að afla ykkur upplýsinga sjálf og láta engan annan (nema í einstaka tilvikum þau sem standa ykkur næst og þykir vænt um ykkur) lita heiminn eða sannleikann fyrir ykkur. Og úr því ég minntist á raunveruleikann vil ég líka brýna ykkur til að nýta þjálfunina sem þið hafið fengið í vísindalegum vinnubrögðum til að greina á milli staðreynda og viðurkenndrar vísindalegrar þekkingar annars vegar og hins vegar skoðana og trúaratriða. Auðvitað má og á að ýta á móti aðferðum og niðurstöðum rannsókna, spyrja, efast og endurtaka, það er beinlínis þannig sem þeim fer fram, nýjar aðferðir festast í sessi og ”þögla kraftaverkið” verður – alveg eins og það er í gegnum gagnrýna umræðu sem ákvarðanir í fyrirtækjum og í samfélaginu verða bestar.“

Sæunn Björk Jónasdóttir.

Særún Björk Jónasdóttir, Bsc í rekstrarverkfræði og fráfarandi forseti SFHR, og Guðmundur Daníel Erlendsson, Bsc í lögfræði, fluttu ávörp fyrir hönd nemenda. Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti tæknisviðs, flutti ræðu við útskrift nemenda af tæknisviði, og dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs, flutti ræðu við útskrift nemenda af samfélagssviði. Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti ræðu fyrir hönd Viðskiptaráðs og veitti verðlaun til nemenda fyrir framúrskarandi námsárangur. Um tónlistarflutning sáu þau Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson. Gréta Matthíasdóttir, sviðsstjóri nemendaþjónustu, stýrði athöfn.

Guðmundur Daníel Erlendsson.
Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson.
21. júní 2026
Nýjustu fréttirnar