Doktorsneti NeurotechEU formlega komið á fót
Doktorsneti evrópska háskólanetins NeurotechEU var nýverið komið formlega á fót og kom hópur doktorsnema sem tilheyrir netinu af því tilefni saman í fyrsta sinn á aðalfundi NeurotechEU í Nijmegen í Hollandi í síðustu viku. Lisa Maria Wu, prófessor við sálfræðideild HR, og Luka Biedebach, nýdoktor við tölvunarfræðideild HR, leiddu vinnuna við doktorsnetið hér á landi í samstarfi við aðila frá Radboud-háskólanum í Nijmegen.
„Það sem mér fannst standa upp úr á aðalfundinum í Nijmegen var hversu fljótt doktorsrannsakendurnir okkar fóru að líta á sig sem hluta af stærri heild en eigin rannsóknarstofu, deild eða háskóla.
Við vildum að þau færu heim með skýra tilfinningu fyrir mikilvægi þess að tilheyra stærra tengslaneti og skilning á því að samstarfsfólkið sem þau kynnast nú gæti orðið meðhöfundar þeirra, samstarfsaðilar og vinir um ókomin ár. Það ferli hófst í Nijmegen,“ segir Lisa Maria, sem er akademísk forstöðukona doktorsnetsins.

„Markmið þessa framtaks er að skapa samfélag fyrir doktorsnema okkar, þvert á háskóla og fræðigreinar. Til lengri tíma litið vonumst við til þess að þetta samfélag stuðli að sterkari tengslum innan háskólanetsins,“ segir Luka, önnur af stjórnendum vinnuhóps doktorsnetsins.

Doktorsnetið tengir þannig saman doktorsnema sem hafa áhuga á þverfaglegum rannsóknum á sviði taugavísinda og/eða tækni eða skyldum sviðum sem heyra undir NeurotechEU. Á aðalfundinum fékk hópurinn tækifæri til þess að:
🔹 Kynnast öðrum doktorsnemum og doktorsrannsakendum víðs vegar um Evrópu
🔹 Deila áhugasviðum sínum þegar kemur að rannsóknum ásamt reynslu og áskorunum
🔹 Kanna tækifæri til alþjóðlegs samstarfs og fræðilegra skipta
🔹 Leggja fram hugmyndir sem móta framtíðarstarfsemi tengslanetsins
🔹 Efla samskiptahæfni með vinnustofu undir leiðsögn prófessors Robert Harris frá Karolinska Institutet
Dagsetning
Deila