Dr. Andri Fannar Bergþórsson hlýtur framgang í stöðu prófessors
Dr. Andri Fannar Bergþórsson, hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Andri Fannar var ráðinn í fullt starf við lagadeild HR árið 2017. Frá þeim tíma hefur hann sinnt kennslu og rannsóknum auk þess að taka virkan þátt í innri starfsemi deildarinnar. Hann fékk framgang í stöðu dósents í september 2021.
Í nefndinni sátu dr. Margrét Einarsdóttir prófessor, dr. Valgerður Sólnes prófessor og dr. Finnur Magnússon lögmaður.
Andri Fannar hefur birt einn eða með öðrum 20 ritrýndar fræðigreinar, auk þess að hafa gefið út tvö ritrýnd fræðirit, þar af eitt ritverk sem byggði á doktorsverkefni hans og gefið var út af virtu erlendu forlagi og annað sem gefið var út hér á landi þar sem meðhöfundur hans er Aðalsteinn E. Jónasson. Í ritverkum Andra Fannars birtast grundvallarrannsóknir á réttarsviðum sem varða verðbréfamarkaðsrétt og fjármálamarkaði. Í matinu kemur fram að rannsóknir Andra Fannars séu fræðilega mikilvægar en ekki síður mikilvægar fyrir viðskiptalífið og samfélagið allt. Þetta birtist t.d. í rannsóknum Andra á markaðsmisnotkun og innherjasvikum. Afrakstri rannsókna sinna hefur Andri síðan leitast við að miðla til víðari hóps í samfélaginu, t.d. með skrif blaðagreina.
Í matinu kemur jafnframt fram að Andri Fannar sé í dag, í krafti rannsókna sinna, helsti sérfræðingurinn hér á landi á sviði verðbréfamarkaðsréttar og fjármálamarkaða í víðara samhengi og þar með leiðandi sérfræðingur á þessum réttarsviðum. Þá hefur hann einnig skapað sér sess sem leiðandi sérfræðingur á þessum réttarsviðum á Norðurlöndunum og byggt upp sterkt tengslanet m.a. í gegnum norræn samstarfsnet á sviðum verðbréfamarkaðsréttar og félagaréttar.
Andri Fannar hefur umtalsverða kennslureynslu á háskólastigi, en hann hefur sinnt kennslu nánast samfleytt frá árinu 2011 og í fullu starfi við lagadeild HR frá 2017. Hann hefur jafnframt kennt námskeið við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og Háskóla Íslands á þeim tíma.
Dagsetning
Deila