Námið
Rannsóknir
HR
23. apríl 2025

Dr. Susanne Durst efst á lista Research.com

Dr. Susanne Durst, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík, er númer eitt á Íslandi á lista Research.com yfir fremstu vísindamenn í heimi í viðskiptafræði og stjórnun fyrir árið 2025.

Röðunin byggir á D-vísitölu (Discipline H-index), sem tekur einungis tillit til greina og tilvitnana innan tiltekins fræðasviðs. Í röðuninni eru einungis fremstu vísindamenn með D-vísitölu að lágmarki 30 fyrir fræðilegar greinar á sviði viðskiptafræði og stjórnunar.

Sérsvið Susanne eru meðal annars þekkingar- og áhættustjórnun, stjórnun og nýsköpun, sjálfbær viðskiptaþróun og ábyrg stafræn umbreyting, sérstaklega hjá minni sprotafyrirtækjum.

Susanne hefur leitt alþjóðleg rannsóknarverkefni og hefur hún hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar, þar á meðal Emerald Literati-verðlaunin fyrir Outstanding Paper árið 2020 og 2023.

23. apríl 2025
Nýjustu fréttirnar