Dr. Þórdís Ingadóttir um ákvörðun Íslands að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum
Dr. Þórdís Ingadóttir, prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í þjóðarétti, ræddi í hádegisfréttum RÚV í dag um ákvörðun Íslands um að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Í málinu er því haldið fram að framganga Ísraels í stríðinu á Gaza brjóti gegn hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur ákveðið að taka þátt í málinu sem meðalgönguríki og leggja fram sjónarmið um túlkun alþjóðalaga.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í efnislegu máli fyrir Alþjóðadómstólnum. Í samtali við RÚV segir Þórdís það hafa sérstaka þýðingu fyrir smáríki eins og Ísland að taka þátt í framfylgd alþjóðalaga með þessum hætti og leggja fram lagaleg sjónarmið fyrir dómstólnum. Hún bendir jafnframt á að sífellt fleiri ríki leiti til Alþjóðadómstólsins í Haag til að knýja fram skýringar og efndir alþjóðlegra skuldbindinga. Sú þróun endurspeglar aukið vægi alþjóðaréttar á tímum þar sem alþjóðakerfið stendur frammi fyrir miklum áskorunum.
Umfjöllum um málið má nálgast hér:
Dagsetning
Deila