Námið
Rannsóknir
HR
17. janúar 2025

Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR

Erla Ósk Wissler Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Executive MBA (EMBA) náms við Háskólann í Reykjavík.

Erla kemur til HR frá Marine Collagen í Grindavík þar sem hún hafði verið framkvæmdastjóri frá árinu 2021. Hún útskrifaðist sjálf úr EMBA náminu við HR árið 2023 og lauk hagfræðiprófi með stærðfræði sem aukagrein frá Macalester College í St. Paul í Minnesota í Bandaríkjunum árið 2004.

Erla er með víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu en áður en hún tók til starfa hjá Marine Collagen hafði hún meðal annars verið mannauðsstjóri Vísis í Grindavík og framkvæmdastjóri Codland ehf. Þá situr Erla í stjórn Síldarvinnslunnar og hefur setið í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.

„Ég er mjög spennt að vera komin til starfa. Ég þekki EMBA námið í HR af eigin raun og veit hversu valdeflandi það er. Ég hlakka til að ganga til liðs við þetta frábæra teymi og leggja mín lóð á vogarskálarnar,“ segir Erla.

17. janúar 2025
Nýjustu fréttirnar