Færni og þekking til þess að sinna íþróttafólki á heildstæðan máta
Björn Orri Hermannsson er með BSc í íþróttafræði frá íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og stundar nú meistaranám í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði. Hann hefur þegar hlotið spennandi starfstækifæri í tengslum við námið.

Í náminu hef ég þróað færni og þekkingu til þess að sinna íþróttafólki á heildstæðan máta þar sem einblínt er á heilsu með það að markmiði að bæta líðan og frammistöðu. Ég hef fengið mörg spennandi starfstækifæri í tengslum við námið enda er mikill uppgangur og eftirspurn eftir aðilum sem hafa færni í að vinna tengt geðheilsu og/eða að hámarka árangur íþróttafólks og almennings.
Björn Orri segir kennslufyrirkomulagið og aðstöðuna við HR algjörlega til fyrirmyndar og magnað að fylgjast með því stórskotaliði gestakennara sem kenni við deildina.

Það sem hefur heillað mig mest í náminu hingað til er „holistic ecological approach“ en það felur í sér að umhverfi íþróttafólks er skoðað og einblínt á það sem býr innra með hverjum og einum. Ég mæli hiklaust með náminu fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa á áhugaverðu og vaxandi sviði.
Í MSc-námi í íþróttavísindum velja nemendur um að sérhæfa sig í þjálfun, frammistöðugreiningu eða íþróttasálfræði, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknatengt og rík áhersla lögð á að tengja rannsóknir við hagnýtingu á vettvangi.
Dagsetning
Deila