Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
11. mars 2025

Forritunarkeppni framhaldsskólanna í HR

Forritunarkeppni framhaldsskólanna fór fram í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag. Keppt var í þremur deildum eftir erfiðleikastigi, Alfa, Beta og Delta, og fóru lið Tækniskólans með sigur af hólmi í Alfa deild og Beta deild og lið Menntaskólans Akureyri í Delta deild.

Þá voru veitt aukaverðlaun fyrir besta nafnið, sem kom í hlut liðs úr Menntaskólanum í Reykjavík, og lið frá Menntaskólanum á Akureyri sigraði myndakeppnina.

Í myndakeppninni voru nemendur hvattir til að fara út í hádegishléinu með þeim fyrirmælum og „snerta gras“, en eins og því var lýst í verkefnalýsingu er frasinn oft notaður af yngri kynslóðum til að svara fólki sem er „þrálátlega nettengt.“

Liðið sem sigraði nafnakeppnina nefndi sig eftir Youtube ID-inu fyrir Rick Astley lagið Never Gonna Give You Up. Dómararnir könnuðust við ID-ið og þótti nafnið vel til fundið.

HR hefur staðið fyrir Forritunarkeppninni í fjölda ára og hefur aðsókn í keppnina aukist með hverju árinu. Í ár tóku alls 135 nemendur þátt í 61 liði og var bæði keppt í HR og Háskólanum á Akureyri.

Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra sendi í fyrsta sinn lið og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Þá var Fjölbrautaskóli Suðurnesja þriðji fjölmennasti skólinn í keppninni en hann hefur ekki sent lið til keppni síðustu ár.

Úrslit í Forritunarkepninni árið 2025 voru sem hér segir:

Alfa deild

  1. sæti: Senior developers: Tækniskólinn - Eva Sóllilja Einarsdóttir og Þórhallur Tryggvason
  2. sæti: extra-04: Tækniskólinn og Menntaskólinn í Reykjavík - Davíð Bjarki Jóhönnuson, Kristinn Hrafn Daníelsson og Róbert Kristian Freysson
  3. sæti: Byte Marks: Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - Gunnsteinn Þór Ólason, Magnús Thor Holloway og Merkúr Máni Hermannsson

Beta deild

  1. sæti: 0Day Hussein: Tækniskólinn - Guðjón Bjarki Árnason og Pétur Alex Guðjónsson
  2. sæti: dQw4w9WgXcQ: Menntaskólinn í Reykjavík - Alex Xinyi Chen og Davíð Smith Hjálmtýsson
  3. sæti: Byte Me: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - Benedikt Fazakerley Richardsson, Bjarki Freyr Finnsson og Pétur Óli Ágústsson

Delta deild

  1. sæti: YesBinairy: Menntaskólinn á Akureyri - Dagbjört Rós Hrafnsdóttir, Elvar Björn Ólafsson og Lárus Vinit Víðisson
  2. sæti: Binary_Bros: Menntaskólinn á Akureyri - Orri Páll Pálsson, Viktor Franz Bjarkason og Víkingur Þorvaldsson
  3. sæti: Cyperpunks: Verzlunarskóli Íslands - Alexander Björnsson og Tómas Bogi Bjarnason

Aukaverðlaun:

Myndakeppni – BoolBollur: Menntaskólinn á Akureyri - Kolfinna Eik Elínardóttir og Nína Rut Arnardóttir

Besta nafnið - dQw4w9WgXcQ: Menntaskólinn í Reykjavík - Alex Xinyi Chen og Davíð Smith Hjálmtýsson

11. mars 2025
Nýjustu fréttirnar