Námið
Rannsóknir
HR
3. febrúar 2026

Fyrsti styrkur veittur úr nýjum Þróunarsamvinnusjóði Háskólans í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík, í samstarfi við utanríkisráðuneytið, hefur veitt þróunarsamvinnustyrk til Grischa Liebel, dósents við Tölvunarfræðideild. Styrkurinn styður þriggja ára rannsóknarverkefni í samstarfi við Makerere-háskóla í Úganda, sem miðar að því að efla þjónustu sveitarstjórna með inngildandi stafrænu ábendinga- og úrlausnarkerfi.

Þetta er fyrsti styrkurinn sem veittur er úr nýstofnuðum Þróunarsamvinnusjóði HR. Alls bárust þrjár mjög góðar umsóknir og var þetta verkefni metið það sterkasta með tilliti til vísindaframlags (fræðilegra gæða), samfélagslegra áhrifa og sjálfbærrar þekkingaruppbyggingar.

Markmið verkefnisins er að hanna og þróa í sameiningu málastjórnunarkerfi fyrir sveitarfélög í Úganda, sérstaklega í dreifbýli. Vinnan mun að mestu leyti byggjast á doktorsverkefni nemanda við Makerere-háskóla með sameiginlegri leiðsögn Grischa við HR. Áhersla verður lögð á að hanna kerfið í nánu samstarfi við staðbundna hagsmunahópa (sérstaklega í dreifbýli) og tengja það við rannsóknir á sviði hugbúnaðarverkfræði og kröfugreiningar.

Mun þetta umbreyta safnaðri endurgjöf í raunhæfar og rekjanlegar umbætur á þjónustu en núverandi lausnir hafa að mestu leyti einblínt á gagnasöfnun. Lögð er sérstök áhersla á inngildingu og aðgengi fyrir öll.

Grischa Liebel, dósent við Tölvunarfræðideild.

Fjármögnunin gerir okkur kleift að byggja upp sjálfbært samstarf þar sem hún styður doktorsnema og tryggir þannig samfelldari vinnu að verkefninu í stað stakra heimsókna eða tímabundinna verkefna. Þar sem þegar er til staðar samstarf milli þeirra sem koma að verkefninu eru góðar líkur á að það nái markmiðum sínum og leiði til langtímasamstarfs milli háskólanna tveggja. Samstarf HR og Makerere-háskóla tryggir því fræðilegt samstarf og gæði.

Segir Grischa um mikilvægi styrksins.

3. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar