Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
1. október 2026

Geðheilbrigðisvika HR í næstu viku

Í tilefni Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 10. október nk. verður Geðheilbrigðisvika HR haldin í tíunda sinn í næstu viku, 5. til 9. október. Þema vikunnar er Sítengd en aftengd í heimi tækninnar þar sem sjónum verður beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf.

„Við í Háskólanum í Reykjavík erum meðvituð um að góð geðheilsa er mikilvægur þáttur í vellíðan og getur skapað góðan grunn fyrir árangur í námi, sem og á öðrum sviðum lífsins. Okkur er því  mikilvægt stuðla að umhverfi þar sem nemendum okkar líður vel, þeim finnst eðlilegt að tala um líðan sína og leita sér stuðnings þegar þeir þurfa á því að halda. 

Samfélagsleg ábyrgð er okkur einnig hugleikin og viljum við að málefnið nái til sem flestra, ekki bara til HR-inga. Þess vegna er meirihluti viðburðanna í streymi, svo að fólk sem á ekki heimangengt geti einnig tekið þátt. Með því að halda geðheilbrigðisviku ár hvert höldum við umræðunni um geðheilsu gangandi og stuðlum að því að hún verði eðlilegur hluti af samtalinu,“ segir Eva Rós Gunnarsdóttir, sálfræðingur hjá nemendaráðgjöf HR.

Auður Friðriksdóttir og Eva Rós Gunnarsdóttir eru sálfræðingar hjá nemendaráðgjöf HR og skipuleggja Geðheilbrigðisvikuna.

Margir bera erfiðleika sína í hljóði

„Að mínu mati skiptir vika sem þessi máli því hún minnir okkur á að það er eðlilegt að tala um geðheilsu, rétt eins og líkamlega heilsu. Margir bera erfiðleika sína í hljóði því þeir halda að enginn annar sé að ganga í gegnum svipaða hluti, og þess vegna leitar fólk sér oft ekki aðstoðar fyrr en vandinn er orðinn meiri.

Með því að skapa rými fyrir opna umræðu  verður auðveldara að tala um líðan sína og leita sér stuðnings þegar þess þarf. Vikan snýst þó ekki aðeins um að auka umræðu og draga úr fordómum, heldur líka um að kynna leiðir sem geta bætt geðheilsu. Þannig getur hún bæði styrkt einstaklinga og stuðlað að heilbrigðara og meðvitaðra samfélagi,“ segir Eva Rós.

Um Geðheilbrigðisviku HR

Nemendaráðgjöf HR, í samstarfi við sálfræðideild, býður upp á fjölbreytta viðburði í Geðheilbrigðisviku HR. Tvö erindi verða í opnu streymi þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar sítengingar. Í fyrra erindinu verður rætt um áhrif tækninnar á félagsleg tengsl og einmanaleika. Seinna erindið fjallar um hagnýtar leiðir til að skapa heilbrigðari venjur í kringum skjánotkun. 

Að auki verður nemendum HR boðið upp á sérstakan hádegisfyrirlestur þar sem fjallað verður um hvernig tæknin getur haft áhrif á athygli okkar og hvað hægt er að gera til þess að ná betri einbeitingu í námi og daglegu lífi.

Nánari upplýsingar um Geðheilbrigðisviku HR og dagskrá vikunnar er að finna hér.

1. október 2026
Nýjustu fréttirnar