Góð samskipti draga úr líkum á ágreiningi

Geðheilbrigðisvika HR hefst í dag og fer nú fram í áttunda sinn í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins þann 10. október. Erindi um farsæl samskipti er meðal erinda í vikunni en þar leiða þær Auður Friðriksdóttir og Eva Rós Gunnarsdóttir, sálfræðingar hjá sálfræðiþjónustu HR, saman hesta sína.
Erindið kallast Undir yfirborðinu – leiðir til að eiga í farsælum samskiptu.Í því munu þær Eva og Auður ræða hvað beri að hafa í huga þegar við eigum í samskiptum við annað fólk og þá sérstaklega í þeim samskiptum sem okkur þykja krefjandi. Að auki munu þær koma með hagnýt ráð til að setja mörk og fara yfir hvernig við getum tekist við ágreining á farsælan hátt.
Hugmyndin að erindinu kviknar út frá því að við eigum jú öll í samskiptum og það spilar stóran þátt í góðu geðheilbrigði að geta átt í góðum samskiptum. Okkur fannst því kjörið að kafa dýpra ofan í samskipti sem við höfum ekki beint sjónum okkur að áður í þesari viku.
Auður bætir við að nafnið vísi til þess að mikilvægt sé að átta sig á því hvað sé í gangi undir niðri til að eiga í farsælum samskiptum.
Það getur verið svo margt í gangi undir niðri sem stýrir hegðun fólks. Við hugsum erindið sem eins konar leiðarstef í því að fólk nái að setja sig í spor annara og skilja þannig hvaðan hinn aðilinn kemur og hvers vegna hann bregst við á ákveðinn hátt. Það auðveldar manni að bregðast sjálfur við á farsælli hátt.
Þær leggja sérstaka áherslu á ágreining í samskiptum þar sem hann getur komið upp víða í daglegu lífi og því mikilvægt að fólk geti tekist á við hann. Með góðum samskiptum sé auðveldara að sýna meiri skilning í garð hvors annars og koma þannig í veg fyrir ágreining. Auður segir það einnig geta skapað vandamál ef ópersónulegur ágreiningur verði persónulegur.
Heilt yfir vekur ágreiningur upp erfiðar tilfinningar og hugsanir eins og ég má ekki taka pláss eða vera með vesen. Það er mjög eðlilegt að upplifa neikvæðar tilfinningar því það er óþægilegt að stíga inn í ágreining en það er mikilvægt að geta gert það. Svo getur ágreiningur verið bæði persónulegur og ópersónulegur og það getur orðið vandamál ef ágreiningurinn er ópersónulegur og tengist t.d. verkefnum eða vinnu en við gerum hann persónulegan með því hvernig við bregðumst við.
Að lokum berst talið að hraða samfélagsins og þeirri staðreynd að oft sé fólk á sjálfsstýringu og keyri sig áfram. Þær Auður og Eva segja mjög mikilvægt að gefa sér tíma til að staldra við, íhuga hvernig við viljum eiga í góðum samskiptum og hvað séu góð samskipti fyrir okkur. Þá sé í raun fyrsta skrefið að farsælum samskiptum að taka hinn aðilann með og muna að þetta snúist um fleiri en einn. Eins að hafa fróðleiksfúsa sýn á það hvað megi læra af hinni manneskjunni til að geta skilið hana betur.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn snýst um vitundarvakningu um geðheilbrigði þar sem reynt er að ná til flestra. Í ár er áherslan lögð á geðheilbrigði á vinnustöðum. Þær segja að almennt séð hafi umræðan um geðheilbrigði orðið opnari og fólk eigi t.a.m. auðveldara með að fara til sálfræðings. Þó sé afar mikilvægt að halda umræðunni lifandi og Geðheilbigðisvika HR og Geðheilbrigðisdagurinn séu mikilvægur liður í því. e
Það er Nemendaráðgjöf HR og sálfræðideild sem standa í sameiningu fyrir viðburðinum.
///
The annual Mental Health Week starts today at RU for the eighth time. The week coincides with World Mental Health Day, held each year on October 10th.
Auður Friðriksdóttir and Eva Rós Gunnarsdóttir, psychologists at RU student support services, will give a talk on successful communication, focusing especially on difficult communication and boundaries.
Our aim is to guide people in understanding what controls our behavior and makes us react in a certain way. This will make it easier for someone to respond in a more successful way to another person. We want to especially tackle difficult communication since they in general create difficult and negative feeling within us. This is very natural but it is important to be able to step into a dispute.
Dagsetning
Deila