Góðu fréttirnar þær að heilinn hefur ótrúlega aðlögunarhæfni og getur náð jafnvægi á ný
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, klínískur sálfræðingur og doktorsnemi við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, hélt fyrirlestur fyrir fullum sal áheyrenda í Heilaviku HR er bar heitið; Hvað gerist þegar heilinn brennur út?
Doktorsverkefni Guðrúnar Rakelar og Berglindar Stefánsdóttur, sem báðar eru stjórnendur hjá VIRK, felst meðal annars í því að skoða kerfisbundið þann hóp sem kemur til VIRK á forsendum kulnunar. Þetta er hópur sem er orðinn óvinnufær að öllu leyti eða hluta til. Hópurinn er því að takast á við alvarlegan vanda og þarf viðeigandi þjónustu.
Í fyrirlestri sínum rakti Guðrún Rakel helstu einkenni kulnunar. Hún segir marga taka fyrst eftir líkamlegum einkennum og nefndi m.a. að svefnvandi væri oft hluti af birtingarmynd kulnunar. Þá lýsi margir þeirri upplifun að þrátt fyrir mikinn vilja sé líkt og heilinn virki einfaldlega ekki lengur.

Guðrún Rakel Eiríksdóttir, klínískur sálfræðingur og doktorsnemi, við sálfræðideild HR.
Nýlegar rannsóknir benda til þess að hugræni þátturinn (cognitive component) sé mikilvægur en honum fylgja einkenni sem birtast snemma eins og einbeitingarvandi, minnistruflanir, skert athygli og stýrifærnivandi.
Segir Guðrún Rakel og bætir við að rannsóknir sýni að ákveðin svæði í heilanum verði fyrir auknum áhrifum við langvarandi streituálag. Þar megi t.a.m. nefna að langvarandi streita hafi þau áhrif á möndluna að virknin eykst þannig að viðkomandi sé stöðugt í viðbragðsstöðu. Langvarandi streita hafi einnig áhrif á framennisbörkinn, sem m.a. er mikilvægur í að stjórna hegðun og athygli, og drekann sem sér m.a. um að festa hluti í minni.
Góðar fréttirnar eru þær að heilinn hefur ótrúlega aðlögunarhæfni og við getum hjálpað honum að ná aftur jafnvægi.
Segir Guðrún Rakel en í fyrirlestrinum nefndi hún einnig mikilvægi þess að byrja á því að meta hvort að geðvandi eða annar heilsufarsvandi sé til staðar. Í þeim tilvikum þurfi að veita viðeigandi meðferð og þjónustu. Fyrir þá sem eru að glíma við kulnun getur svo verið mikilvægt að huga að því hver sé helsti streituvaldurinn en það skiptir máli varðandi nálgun í þjónustu og að fólk nái heilsu á ný.
Dagsetning
Deila