Gulur september settur í HR á morgun
Gulur september verður formlega settur í Háskólanum í Reykjavík á morgun, þriðjudaginn 1. september klukkan 14:00. Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Í ár er lögð sérstök áhersla á ungt fólk, geðrækt, forvarnir og mikilvægi þess að enginn þurfi að standa einn þegar erfiðleikar steðja að.

Fjölbreytt dagskrá
Á opnunarviðburðinum verður nýtt neyðarnúmer Píeta samtakanna opinberað og kór mun frumflytja lag sem tengist Gulum september og starfi Píeta.
Þá munu Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir aðstoðarrektor HR og Rúnar Gauti Gunnarsson forseti SFHR flytja ávörp ásamt fulltrúa Píeta.
Einnig verður veitt viðurkenning Lífsbrúar til einstaklings og liðsheildar fyrir mikilsvert framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi, Edda Björgvinsdóttir leikkona flytur hugvekju og KASI verður með tónlistaratriði.
Nánari upplýsingar um setningu Guls september og átakið er að finna hér.
Dagsetning
Deila