Hagnýt atferlisgreining í HR // Mikil eftirspurn eftir sérfræðingum með þessa þekkingu og færni
Berglind Sveinbjörnsdóttir lektor og forstöðukona MSc náms við HR
Atferlisfræðingurinn Berglind Sveinbjörnsdóttir stofnaði nám í hagnýtri atferlisgreiningu (e. Applied Behaviour Analysis) við Háskólann í Reykjavík fyrir tæpum fjórum árum ásamt fleirum úr sálfræðideild skólans. Námið var það fyrsta af því tagi á Íslandi en hagnýt atferlisgreining er vísindagrein byggð á grunnlögmálum um nám og hegðun.
Berglind er sjálf með meistarapróf í hagnýtri atferlisgreiningu frá Northeastern University í Bandaríkjunum og með doktorspróf í atferlisgreiningu frá Western New England University.
„MSc nám í hagnýtri atferlisgreiningu við HR er bæði sniðið að þörfinni hér á Íslandi sem og byggt á alþjóðlegum viðmiðum varðandi þá þekkingu og færni sem atferlisfræðingar ættu að vera með. Við leggjum áherslu á að nemendur fái hagnýta þekkingu og færni á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga en að auki leggjum við mikla áherslu á að nemendur fái sterkan fræðilegan grunn sem er nauðsynlegur þegar unnið er á vettvangi, í rannsóknum eða fyrir frekara nám,“ segir Berglind.

Fjölbreyttur hópur nemenda með ólíkt áhugasvið hefur stundað námið frá því það fór af stað haustið 2019 og er mikil eftirspurn eftir sérfræðingum með þessa þekkingu og færni. Þau sem hafa lokið námi í atferlisgreiningu starfa á fjölbreyttum vettvangi eða hafa farið í doktorsnám. Í náminu er lögð áhersla á gagnreyndar aðferðir við að meta hegðun, kenna nýja færni, og draga úr hegðun sem er skaðleg, með það að markmiði að bæta lífsgæði einstaklinga. Nemendur taka námskeið sem snúa meðal annars að starfsmannaþjálfun, öldrun, svefni, hegðunarvanda, og námsvanda almennt. Að auki eru námskeið þar sem nemendur fara á vettvang undir handleiðslu atferlisfræðinga til að mynda í Arnarskóla, Klettaskóla, á Landspítalann, í Þjónustumiðstöðvarnar og á Ráðgjafar- og greiningarstöð en námið er með mjög sterk tengsl við fagfólk í atferlisgreiningu á Íslandi. Kennarar námsins eru margir hverjir búsettir erlendis og þekktir á alþjóðavettvangi fyrir framlag sitt til greinarinnar sem og fólk sem vinnur á vettvangi hér heima.
„Það voru nokkrir þættir sem höfðu áhrif á að ég fór sjálf þessa leið í námi. Ég hafði alltaf unnið með börnum, í leikskólum, grunnskólum og leikjanámskeiðum. Á lokaárinu mínu í BSc námi fór ég svo að vinna með einhverfri stúlku, sem var þá fjögurra ára, í snemmtækri íhlutun. Það var eiginlega hún sem kveikti áhugann. Við náðum vel saman og það var gaman að sjá svona miklar framfarir, til dæmis í tjáningu og fleira,“ segir Berglind.
Hún var svo eitt sumar að vinna með börnum sem sýndu hegðun sem var hættuleg þeim sjálfum og öðrum. „Mér þótti erfitt að kunna ekki nógu vel hvernig ætti að bregðast við þeim aðstæðum og virtist vera úrræðaleysi þegar sneri að svona hegðun“. Ég var ákveðin eftir þá reynslu að fara í framhaldsnám sem myndi nýtast í svona aðstæðum.“
Þegar Berglind kynntist Írisi Árnadóttur atferlisfræðingi í gegnum vinnu fékk hún mikinn áhuga á vísindunum sem lágu að baki aðferðunum sem notaðar eru í atferlisgreiningu. „Ég fór þá alvarlega að skoða MSc nám og hitti Atla Magnússon, atferlisfræðing, sem sagði mér frá MSc náminu sem hann var í, sem ég fór svo sjálf í. Eftir það nám fór ég í áframhaldandi doktorsnám, kom síðan heim frá Bandaríkjunum árið 2015 og byrjaði að kenna í klínískri sálfræði við HR. Ég var svo hluti af teymi í sálfræðideild sem stofnaði MSc nám í atferlisgreiningu sem fór af stað 2019 og við útskrifuðum fyrsta hópinn árið 2021,“ segir Berglind Sveinbjörnsdóttir lektor og forstöðukona MSc náms við Háskólann í Reykjavík.
Nánar má lesa um meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu hér.
Opið er fyrir umsóknir í meistaranám við HR til og með 30. apríl.

///
Berglind Sveinbjörnsdóttir, an Assistant Professor and Director of MSc in Applied Behaviour Analysis, founded the Applied Behavior Analysis program at Reykjavík University. Along with others from the school's psychology department, she established the program almost four years ago, making it the first of its kind in Iceland. Applied behavior analysis, a scientific discipline grounded in the fundamental laws of learning and behavior, is the foundation for this program.
The Master's programme in Applied Behaviour Analysis teaches students how to utilize the general principles of learning and behavior to address issues for individuals and society. These evidence-based methods, derived from behavior analysis, are relevant in all communities as they address common challenges encountered in everyday life.
You can read more about the master's program in applied behavioural analysis.
Applications for the Applied Behaviour Analysis program at RU are open until April 30.
Dagsetning
Deila