Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
5. mars 2025

Háskólaskrifstofa HR tekur til starfa

Háskólaskrifstofa er nýtt stoðsvið innan Háskólans í Reykjavík sem sameinar undir einum hatti verkefnastjóra og sérfræðinga sem áður störfuðu fyrir skólann í heild. Háskólaskrifstofa sinnir ýmis konar stjórnsýslu fyrir allan skólann auk þess að veita rektor, stjórnendum og deildarforsetum nauðsynlega stoðþjónustu.

Á meðal verkefna háskólaskrifstofu eru lögfræðiráðgjöf, skjalastjórnun, almannatengsl, samskipti við ráðuneyti og stofnanir, atvinnulífstengsl, sjálfbærni, stuðningur við nýsköpun, umsjón með stefnubókhaldi og NeurotechEU. Áður var verkefnum sinnt af verkefnastjórum sem heyrðu beint undir rektor en með stofnun háskólaskrifstofu er utanumhald og yfirsýn yfir þessi verkefni, og önnur, styrkt.

Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir er skrifstofustjóri háskólaskrifstofu en hún var áður forstöðukona atvinnulífstengsla og nýsköpunar hjá HR.

Með stofnun háskólaskrifstofu eflum við sýnileika og þjónustu við stjórnendur og deildir. Lögð verður áhersla á gæðamál og skipulag með það að markmiði að tryggja yfirsýn og varðveita þekkingu. Gott samstarf er lykilatriði til að stuðla að skilvirkni og samræmi í starfsemi háskólans.

Sex konur stilla sér upp og standa í röð fyrir framan stóran stiga.
Á myndinni er starfsfólk háskólaskrifstofu, frá vinstri: Sunna Kristín Hilmarsdóttir, verkefnastjóri miðlunar og samskipta, Ragnheiður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri háskólasamstarfs, Hrafnhildur G. Stefánsdóttir, skjalastjóri, Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri háskólaskrifstofu, Margrét Þóroddsdóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi, og Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla og sjálfbærni. Á myndina vantar Silju Stefnisdóttur, ritara rektors og verkefnastjóra greininga.
5. mars 2025
Nýjustu fréttirnar