Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
7. ágúst 2026

Hvað þurfa nemendur að hafa í huga í skólabyrjun?

Gréta Matthíasdóttir, sviðsstjóri nemendaþjónustu Háskólans í Reykjavík, er hokin af reynslu þegar kemur að þjónustu við nemendur. Nú þegar nýtt skólaár er að hefjast er eins og gefur að skilja í mörg horn að líta fyrir nemendur.

„Þegar þú ert að færast inn í háskólaumhverfið skiptir ótrúlega miklu máli að vera með sem skýrasta sýn á hvaða þjónusta stendur þér til boða. Allt varðandi upplýsingar; upplýsingaflæði, hvaðan upplýsingarnar koma og hvar þú átt að vera að fylgjast með,“ segir Gréta.

„Það er mikilvægt að kynna sér mjög vel kennslukerfið Canvas og fylgjast mjög vel með HR (RU) póstinum sínum, af því að þar koma mest áríðandi tilkynningarnar. Gott er að kynna sér mjög vel dagatal skólans, þar sem kemur m.a. fram hvenær miðannarpróf og lokapróf fara fram, þannig að þú sért með það á hreinu.

Einnig að þú kynnir þér allar námsreglur, réttindi og skyldur. Þetta er allt mjög mikilvægt fyrir háskólanema, að þú vitir mjög vel hvernig tímalínan er og kynnir þér allt varðandi námsuppbygginguna. Að þú kynnir þér hvert námskeið mjög vel, kröfur hvers námskeiðs, uppbyggingu þess og hvernig námsmati er háttað.

Þetta er allt í þínum höndum sem nemanda, að bera ábyrgð á þessu. Aðgengi að upplýsingum á að vera gott, bæði á vefnum og skjáunum í byggingunni. Síðan er þessi þjónusta sem nemendaþjónustan er, hún er fyrir alla HR-inga. Við hvetjum nemendur til þess að nýta sér þjónustuna,“ segir hún.

Engin spurning er asnaleg

Eins og heitið gefur til kynna býður nemendaþjónusta HR upp á ýmsa þjónustu, sem Grétu er ljúft og skylt að fara yfir.

„Byrjum á hjartanu í HR sem er þjónustu- og upplýsingaborðið í Sólinni, þar sem þú getur í raun fengið alla fyrstu hjálp hjá Gyðu og Guðrúnu. Engin spurning er asnaleg þannig að endilega leita þangað. Þar við hliðina á er svo UTS, upplýsingatæknisvið, þar sem má fá aðstoð vegna alls sem varðar tæknimál.

Síðan er nemendaskráin og námsmatið sem heldur öll próf í skólanum. Í raun heldur nemendaskráin og námsmatið í hönd nemandans frá því að hann innritar sig og þangað til hann útskrifast.

Þetta er deild sem heldur utan um allar nemendaskráningar, allt prófahald og útskriftir. Það er ágætt fyrir nemendur að vita að það er heilt batterí á bak við þetta allt saman. Skrifstofa nemendaskrár og námsmats er við hliðina á þjónustuborðinu,“ segir hún.

Gréta leiðir okkur áfram í gegnum bygginguna.

„Ef þú gengur inn ganginn sem liggur inn að bókasafni finnur þú svokallað skynvin, sem er skynvænt rými þar sem þú getur dregið þig í hlé. Þar inni er ætlast til þess að nemendur séu hvorki með tæki né að borða, einungis að draga sig í hlé frá áreiti. Það getur verið mjög mikilvægt fyrir mjög marga.

Þar fyrir innan er okkar góða bókasafn þar sem okkar frábæru upplýsingafræðingar eru boðnir og búnir til þess að styðja við nemendur. Ég hvet nemendur til þess að koma fyrr en síðar á bókasafnið í því skyni að fá stuðning og aðstoð við heimildaskráningu, heimildaleit og ýmislegt annað sem varðar það að vera í háskóla, þar sem þú þarft að kunna skil á ýmsu. Þarna eru sérfræðingar sem geta sannarlega stutt við nemendur,“ segir Gréta.

Gott að eiga hauka í horni

„Þar fyrir innan er svo nemendaráðgjöfin. Það er náms- og starfsráðgjöfin og sálfræðiþjónustan, sem er eitthvað sem nemendur ættu líka að kynna sér mjög vel. Þar fá þeir stuðning við skipulag og fleira. Nemendaráðgjöfin heldur í hendur nemenda og sér til þess að þeir fái stuðning.

Náms- og starfsráðgjafarnir eru svolítið eins og námslegir markþjálfar. Þú getur líka rætt persónuleg mál við þá. Þú getur speglað þig og spurt. Það er eins og hjá þjónustuborðinu, engin spurning asnaleg. Það er ótrúlega gott að hafa stuðning og yfirsýn varðandi námið sitt af því að þetta er oft svolítið mikið og mikið álag.

Sálfræðiþjónustan styður við nemendur með mjög fjölbreyttum hætti, endilega að kynna sér þá þjónustu. Það er mjög breitt svið sem hún fer yfir sem þarf ekki endilega að vera tengt náminu. Þú þarft að vera í góðu standi til þess að geta tekist á við krefjandi verkefni. Þá er gott að eiga hauka í horni.

Loks er nemendaþjónustan líka með alþjóðaskrifstofu HR, sem sér um skiptinám. Það eru skiptinemar inn og út. Það er eitthvað sem nemendur ættu líka að kynna sér fljótlega þó þeir séu ekki að fara í skiptinám á fyrstu önninni. Að hafa það í huga hvaða möguleikar eru í boði, fá upplýsingar og taka þátt í því starfi sem alþjóðasviðið sér um,“ heldur Gréta áfram.

Við erum hér fyrir nemendur

Hún leggur áherslu á að nemendur ættu óhikað að kynna sér nemendaþjónustu HR og nýta sér alla þá þjónustu sem er í boði, enda er sviðinu ætlað að vera grunnstoð fyrir HR-inga.

„Nemendaþjónustan er boðin og búin til að styðja við alla HR-inga. Við erum hérna fyrir nemendur og vinnum mjög þétt með stúdentafélaginu (SFHR) þannig að endilega, ef það er eitthvað sem þið mynduð vilja benda á þá er bara að hafa samband.

Það að vita af stuðningi og þeirri þjónustu sem er í boði í HR skiptir mjög miklu máli strax í upphafi, að nemendur séu meðvitaðir um það sem við höfum upp á að bjóða. Við erum hér fyrir nemendur,“ segir Gréta að lokum.

7. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar