Íslenskan kennd á hagnýtan hátt
Á námskeiði í íslensku fyrir erlenda nemendur og starfsfólk Háskólans í Reykjavík er miðað að því að kenna íslensku fyrst og fremst á hagnýtan hátt. Markmiðið er að nemendur geti notað tungumálið sem fyrst í daglegum samskiptum, til dæmis í vinnu, í verslunum og í félagslífi.
Áhersla er lögð á talað mál og skilning og byggir kennslan á samræðum og hlustunaræfingum þar sem tekið er mið af raunverulegum aðstæðum. Unnið er með orðaforða, framburð og grunnmálfræði og nemendur fá tækifæri til að æfa sig í að spyrja, móta stuttar setningar og svara spurningum. Kennslan er sveigjanleg með áherslu á einstaklingsaðlögun og hvetjandi endurgjöf svo nemendur finni sjálfstraust í notkun á íslensku.

Námskeiðið er sett upp sem byrjendanámskeið en nemendur sem hafa grunn í íslensku eða hafa lokið byrjendanámskeiðinu eru velkomnir, enda gefst kjörið tækifæri á námskeiðinu til að þjálfa færni sína enn frekar. Það má líka geta þess að Listaháskólinn sendir einnig nemendur sína í þessa tíma.

Jóhann Björnsson, kennari við Háskólagrunn HR, kennir námskeiðið. Hann segir það hafa gengið vel og oft myndist skemmtilegar umræður í hópnum. Þá sé íslenskukennslan einnig kjörinn vettvangur til að kynnast öðrum sem eru í svipuðum sporum.
Dagsetning
Deila