Kennarar og nemendur þeirra eiga skilið framúrskarandi kennsluefni
Sharon Walpole er þekktur fræðimaður á sviði læsis og lestrarkennslu sem hefur um árabil rannsakað hvernig best sé að styðja við lestrarfærni barna og efla árangursríka kennsluhætti í skólum. Hún hefur starfað náið með kennurum og skólasamfélögum að þróun gagnreyndra aðferða sem tengja rannsóknir við daglegt starf í kennslustofunni.
Sharon hélt nýverið vinnustofu fyrir kennara í Opna háskólanum í HR og var gerður mjög góður rómur að erindi hennar. Lagði hún þar áherslu á mikilvægi markvissrar lestrarkennslu og snemmtækrar íhlutunar og þess að kennarar fái raunverulegan stuðning til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda.
Ég fjallaði um núverandi áskoranir í bandarískum skólastofum og tengdi þær við áskoranir hérlendis varðandi lesskilning og árangur í lestri. Þá kynnti ég líkan um þróun lestrarfærni og tengdi við það tvær gagnreyndar kennsluaðferðir. Sú fyrri er markviss kennsla í umskráningu (decoding) og sú síðari er endurtekinn lestur með stigvaxandi stuðningi. Við ræddum einnig hvaða matsgögn gætu bent til þess hvor þessara aðferða væri líklegust til að nýtast hverjum nemanda best.

Segir Sharon um efni vinnustofunar og bætir við að þátttakendurnir hafi verið framúrskarandi, spurt mikilvægra spurninga og lagt sig fram við að yfirfæra hugmyndirnar yfir á íslenskt mál og íslenskar aðstæður.
Ég fann fyrir einlæglegum áhuga fólks á viðfangsefninu og því sem þau vildu geta mögulega breytt í eigin kennslu. Ég hafði það á tilfinningunni í lokin að við hefðum öll viljað ná enn lengri tíma saman.
Segir Sharon og tekur Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen, forstöðukona Opna háskólans í HR undir það. Hún segist hafa fundið fyrir miklu þakklæti frá þátttakendum fyrir vinnustofuna þar sem að gagnreynd nálgun Sharon væri einmitt það sem kennurum þætti oft vanta í umræðuna hérlendis.
Kennarar eiga skilið raunverulegan stuðning í starfi sínu. Ég þróa kennslu og íhlutanir sem miða að því að yfirfæra rannsóknarniðurstöður yfir í raunverulegt skólastarf. Sú vinna hjálpar kennurum að beina athygli sinni að nemendum fremur en að því að leita að kennslugögnum og úrræðum. Kennsla ætti að vera gefandi starfsvettvangur. Kennarar og nemendur þeirra eiga skilið framúrskarandi kennsluefni.
Segir Sharon að lokum.
Dagsetning
Deila