Knattspyrnusamband Íslands og íþróttafræðideild HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Nemenda gefst kostur á að velja sér áherslulínu í samráði við KSÍ, þ.e. að velja á milli þjálfunar, frammistöðugreiningar eða íþróttasálfræði. Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2026 og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkvæmt skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist KSÍ. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við þjálfarateymi KSÍ og leiðbeinanda frá HR. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KSÍ.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á iðkendum KSÍ undir handleiðslu þjálfarateymis KSÍ og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
- KSÍ getur óskað eftir því að nemandi sjái um fræðslu eða ráðgjöf innan KSÍ. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við knattspyrnu og veita KSÍ aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að útbúa ráðleggingar um endurheimt og næringu leikmanna KSÍ í námskeiðinu „Recovery and Nutrition“. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá KSÍ sem hluta af námi sínu.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.
Smelltu hér til að kynna þér MSc í íþróttavísindum.
Umsókn þarf að innihalda ferilskrá og tilgreina þarf hvaða áherslulínu umsækjandi óskar eftir.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast með tölvupósti til Hjalta Rúnars Oddssonar, hjaltio@ru.is, og Hafrúnar Kristjánsdóttur, hafrunkr@ru.is.
Dagsetning
Deila