Kristján Reykjalín Vigfússon nýr lektor við viðskipta- og hagfræðideild
Kristján Reykjalín Vigfússon hefur hlotið framgang í stöðu lektors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík eftir mat hæfisnefndar. Kristján lauk doktorsprófi í viðskiptafræði, með áherslu á stefnumótun og stefnumiðaða stjórnun, frá Háskóla Íslands árið 2025. Doktorsrannsókn hans beindist að innleiðingu stefnu innan íslensks sjávarútvegs. Kristján er auk þess með BA og MA próf í stjórnmálafræði og MBA próf.
Hann hefur kennt við HR í hartnær tvo áratugi og á þeim tíma kennt yfir 60 námskeið í stefnumótun, samningatækni, sjálfbærni, sjávarútvegi og alþjóðaviðskiptum. Þá hefur hann leiðbeint nemendum í tugum BSc-ritgerða auk fjölda MSc- og MBA-lokaverkefna en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra MBA-námsins í HR frá 2012 til 2017.
Rannsóknir Kristjáns eru á sviði stefnumótunar og samkeppnisforskots og hafa verið birtar í alþjóðlegum tímaritum á borð við Marine Policy og Journal of Strategy and Management. Samhliða akademísku starfi hefur hann lagt sitt af mörkum í samfélaginu og atvinnulífinu með ráðgjafarstörfum fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins, reglulegri þátttöku í fjölmiðlum og ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagasamtök og fyrirtæki.
Kristján starfaði í ráðuneytum, sendiráði Íslands í Brussel, sem aðstoðarforstjóri Siglingastofnunar Íslands og var formaður vinnuhópa EFTA/EES í Brussel í samtals 14 ár áður en hann hóf störf í akademíunni.
Í nefndinni sátu Dr. Sveinn Viðar Guðmundsson, prófessor við HR, Dr. John Steen, dósent við University of British Columbia og Dr. Rakel Heiðmarsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst.
Dagsetning
Deila