Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
19. maí 2025

Lagadeild og tölvunarfræðideild hefja samstarf á sviði gervigreindar og tölvuöryggis

Lagadeild og tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík hyggjast hefja samstarf á sviði gervigreindar og tölvuöryggis. Þetta samstarf byggir á sameiginlegri sýn um mikilvægi þess að efla þekkingu, menntun og rannsóknir á þessu sviði, sem er sífellt mikilvægara fyrir öryggi einstaklinga, samfélaga og ríkja.

Aðaláhersla verður lögð á þróun þekkingar og lausna tengd gervigreind og tölvuöryggi, með sérstakri áherslu á ábyrga þjálfun og notkun á gervigreind, sem og varnir gegn netárásum og öðrum stafrænum ógnum. Einnig verður horft til samstarfs á sviði gagnavörslu, verndar persónuupplýsinga og upplýsingatækni almennt – sviða sem krefjast bæði tæknilegrar og lagalegrar sérþekkingar.

Á sviði menntunar og kennslu hyggjast deildirnar þróa sameiginleg námskeið sem nýta fjölbreytta sérhæfingu hvorrar deildar fyrir sig. Þá munu deildirnar einnig stuðla að því að samþætta þekkingu sína í námskeið sem þegar eru í boði, þannig að nemendur fái dýpri og heildstæðari innsýn í þessi fjölbreyttu viðfangsefni.

Þegar kemur að rannsóknum munu deildirnar efla samstarf í leiðsögn meistara- og doktorsnema, auk þess að styðja við sameiginleg rannsóknaverkefni og styrkja tengsl milli rannsóknasetra deildanna á sviði gervigreindar og tölvuöryggis.

Samstarfið mun einnig beinast að því að efla tengsl við atvinnulífið og samfélagið á þessum sviðum. Við teljum þessi mál skipta sköpum fyrir framtíðaröryggi almennings og viljum leggja okkar af mörkum til að efla vitund, menntun og lausnir sem stuðla að öruggari stafrænum heimi.


Sæktu um grunnnám í HR fyrir 5. júní.

19. maí 2025
Nýjustu fréttirnar