Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
17. mars 2026

Leikjavæðing náms hentar öllum skólastigum

Ráðstefnan Nature meets Play fer fram í dag, þriðjudaginn 17. mars í HR og er öllum opin. Leikjavæðing umhverfisfræðslu verður í brennidepli á ráðstefnunni sem fram fer á ensku.

Ráðstefnan er haldin út frá BuildAsNature verkefninu sem er samstarfsverkefni HR, Dortmund University of Fachhochschule, Panepistimio Thessalias háskólanum í Grikklandi, Tallinn háskóla og Virtual Campus LDA.

Það hefur verið mjög skemmtilegt og gefandi að vinna með þessum fjórum skólum. Áður höfum við fundað í Dortmund í Þýskalandi og Volos á Grikklandi. Nú er þriðji fundurinn hér auk þessarar ráðstefnu. Erasmus+ verkefni eins og þessi eru svo mikilvæg til að mynda tengsl við aðra háskóla og eins til að gera sér grein fyrir menningarmun á akademískri vinnu á milli ólíkra landa.

Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sérfræðingur við tölvunarfræðideild HR, skipuleggur ráðstefnuna.

Segir Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sérfræðingur við tölvunarfræðideild HR, sem skipuleggur ráðstefnuna. Verkefnið snýr að þróun námsupplifunar sem miðar að því að efla þverfaglega, stafræna færni. Kjarni verkefnisins er að þróa svokallaðan serious game eða fræðsluleik fyrir háskólanema þar sem þeir geta kannað og beitt lausnum byggðum á ferlum sem finnast í náttúrunni. Á ráðstefnunni munu alþjóðlegir sérfræðingar í fræðsluleikjum, menntun og sjálfbærni- og umhverfismálum halda erindi og vinnustofur um hönnun og innleiðingu leikjamiðaðra aðferða í umhverfisfræðslu.

Við munum einnig kynna verkefnið og leikinn sem við höfum verið að þróa í þessu samstarfi. Það er gaman að segja frá því að um er að ræða kennsluleik fyrir nemendur á háskólastigi en hugmyndin er að nýta hann sem hluta af kennsluáætlun í menntaskóla- og háskólanámskeiðum á sviði sjálfbærni, landafræði og náttúruvernd. Það er algengara að heyra um notkun kennsluleikja í grunnskólum en þeir eru alveg eins góðir í háskóla til að kenna hugmyndir á hnitmiðaðan hátt.

Segir Steingerður Lóa og bætir við að það sé alltaf að verða algengara og algengara að nýta tölvuleiki til náms hérlendis. Þar megi nefna t.d. stærðfræðileikinn Evolytes auk þess sem um stór hópur fólks sé í Facebook hópi er heitir Tölvuleikir og spil í námi og kennslu.

Leikjavæðing náms er enn í þróun og mótun en við sjáum á því sem þegar er til að með henni bjóðast ótal möguleikar til að kenna námsefni á spennandi og skemmtilegan hátt.

Segir Steingerður Lóa að lokum.

17. mars 2026
Nýjustu fréttirnar