Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
25. apríl 2023

Meistaranám í íþróttafræði // Melkorka fékk mörg spennandi atvinnutilboð að námi loknu

Melkorka Rán Hafliðadóttir er ungur íþróttamaður og þjálfari sem útskrifaðist með meistaragráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022. Hún starfar nú sem yfirstyrktarþjálfari knattspyrnudeildar KR og stefnir á doktorsnám í íþróttafræði næsta haust.

Melkorka_Ran_Haflidadottir_meistaragradu_i_ithrottafraedi_HR_4

Af hverju ákvaðstu að fara í meistaranám í íþróttafræði í HR?

Eftir að ég lauk grunnnáminu mínu í íþróttafræði við HR þá fékk ég tilboð um að koma í meistaranámið þar og vinna lokaverkefnið mitt í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra. Mér fannst það vera spennandi verkefni og ákvað því að taka tilboðinu,

segir Melkorka.

HELSTU KOSTIR MEISTARANÁMS VIÐ HR

HR hefur frábæra aðstöðu sem býður upp á endalausa möguleika í rannsóknum sem er stór kostur fyrir meistaranema sem eru að vinna að lokaverkefninu sínu. Ég upplifði einnig mjög góð tengsl við kennara og alla þá sem starfa við íþróttafræðideildina og í skólanum. Mjög jákvætt andrúmsloft og auðvelt að nálgast alla til að fá aðstoð. Síðast en ekki síst þá hefur HR mjög góð tengsl við atvinnulífið og býður einnig upp á verkefni sem tengjast atvinnulífinu. Til dæmis þá gerði ég lokaverkefnið mitt í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra og fékk í kjölfarið starf hjá þeim. Einnig fékk ég starf sem styrktarþjálfari hjá meistaraflokki karla í KR gegnum HR.

VAR MEÐ SKÝRA STEFNU

Ég lagði áherslu á það að gera öll mín verkefni tengd því sem ég hafði áhuga á að starfa við að námi loknu. Ég hafði það að markmiði að vera vel undirbúin, vera búin að mynda mér stefnu hvert ég vildi fara og þar af leiðandi sérhæfa mig í því.

Melkorka Rán Hafliðadóttir er ungur íþróttamaður og þjálfari sem útskrifaðist með meistaragráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022. Hún starfar nú sem yfirstyrktarþjálfari knattspyrnu

Melkorka segist hafa fengið mörg spennandi atvinnutilboð eftir að hún lauk meistaranáminu í HR vorið 2022 en hún er nú í fullu starfi hjá KR sem yfirstyrktarþjálfari knattspyrnudeildarinnar. Hún segir meistaranámið í HR hafa hjálpað henni að vera fræðilega undirbúin fyrir starf sitt sem styrktarþjálfari.

FRÆÐIGREIN Í STÖÐUGRI ÞRÓUN

Íþróttafræði er fræðigrein sem er stöðugt að þróast og því er mikilvægt að geta rýnt í fræðin og farið yfir þau á gagnrýnan hátt. Í starfi eins og styrktarþjálfun þá eru margar leiðir til að nálgast markmið og því er gott að vita hvar sé best að afla upplýsinga og í kjölfarið móta eigin fræði sem þú notar í starfinu til að ná þínu markmiði. Ég myndi hiklaust mæla með meistaranámi í íþróttafræði hjá HR.

Melkorka stefnir á að setjast aftur á skólabekk HR í haust, nú sem doktorsnemi. 

Ég stefni að því að fara aftur í HR í haust og byrja í doktorsnámi í íþróttafræði og hyggst vinna með frammistöðugreiningar (sport performance analysis) í fótbolta.

Melkorka Rán Hafliðadóttir er ungur íþróttamaður og þjálfari sem útskrifaðist með meistaragráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022. Hún starfar nú sem yfirstyrktarþjálfari knattspyrnu

UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Í HR
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf. Hvort sem það er á sviði þjálfunar, kennslu eða stjórnun veitir meistaragráða aukin réttindi og sérfræðiþekkingu.


///////////

Melkorka Rán Hafliðadóttir is a young athlete and coach who graduated with a master's degree in sports science from Reykjavík University in 2022. She currently works as the head strength coach of the KR soccer department and aims to study for a doctorate in sports science next fall. But why did Melkorka choose the master‘s program in sports science at RU? „After I finished my undergraduate studies in sports science at RU, I received an offer to join the master's program there and work on my final project in collaboration with the Sports Association of the Disabled. I thought it was an exciting project, so I decided to accept the offer,“ says Melkorka.

RU has excellent facilities that offer endless possibilities for research, which is a great advantage for master's students working on their final project. I also had a perfect relationship with teachers and all those who work at the sports science department and the school. The atmosphere is very positive, and asking for assistance is easy. Last but not least, RU has excellent relations with economic life and also offers projects related to the business world. For example, I did my final project in collaboration with the Sports Association of the Disabled and subsequently got a job there. I also got work as a strength coach at the men's football club KR through the university.

25. apríl 2023
Nýjustu fréttirnar