Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
17. apríl 2023

Meistaranám í viðskiptafræði // Námið dýpkaði þekkingu á fjármálum

Magnea Árnadóttir fjármálastjóri Motus

IMG_0843

Magnea Árnadóttir, fjármálastjóri Motus,

Magnea Árnadóttir útskrifaðist með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík árið 2021 og hóf þá störf sem fjármálastjóri Motus. 

Ég var mjög ánægð með námið og fannst það bæði dýpka og breikka þekkingu mína á fjármálum. Samsetning kennara var fjölbreytt sem jók gæði náms og gaf bæði góða innsýn inn í atvinnulífið og innlenda og erlenda markaði ásamt því að vera akademískt. Ég mæli eindregið með náminu við aðra, hvort sem það eru einstaklingar að koma beint úr grunnnámi eða með reynslu á atvinnumarkaði.

Sem fjármálastjóri ber Magnea ábyrgð á fjármálum, rekstri og áhættustýringu félagsins og tengdra félaga. Ásamt öðrum stjórnendum félagsins hefur hún einnig unnið að því að styrkja innviði félagsins og byggja upp undir að útvíkka og breikka vöruframboðið, en Motus er stærsta innheimtufélag landsins. Hún segir námið hafa nýst sér á margan hátt í starfinu, allt frá fjármálum, fjármögnun, rekstri og yfir í stjórnun og mannauðsmál.

IMG_0753_1681737042092

 

Magnea útskrifaðist með BSc gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði 2004 en færði sig yfir á fjármálamarkaðinn eftir tvö ár í tölvugeiranum. Fram að meistaranáminu starfaði hún lengst af hjá Íslandsbanka m.a. við gjaldeyrisstýringu, í áhættustýringu og sem forstöðumaður fjármála og reksturs á Viðskiptabankasviði.

Eftir að hafa starfað í banka í fjölda ára langaði mig að auka þekkingu mína á sviði fjármála fyrirtækja og mér fannst uppbygging námsins í HR mjög góð Mín helstu markmið í vinnu eru í dag tengd þeirri vegferð okkar hjá Motus að bjóða upp á alhliða kröfustýringu og gagnadrifna innheimtu. Því tengdu langar mig að byggja upp fjármálasvið framtíðarinnar þar sem ferlar, gögn og gæði eru í fyrirrúmi.

Fjölbreytt meistaranám er í boði við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík. Meistaranám við viðskiptadeild HR er byggt á alþjóðlegum kröfum og þróað í samráði við framsækin íslensk fyrirtæki. Meistaranám í markaðsfræði undirbýr nemendur fyrir stjórnenda- og sérfræðistörf sem markaðsstjórar og sérfræðingar.

Meistaranám í fjármálum fyrirtækja er fyrir þá sem vilja sérhæfa sig í stjórnun og rekstri. Nemendur eru búnir undir störf sem fjármálastjórar, sérfræðingar í fjármálum fyrirtækja, fjármálagreinendur, fjármálaráðgjafar og fagfólk í fjárfestatengslum.

Umsóknarfrestur um meistaranám er til 30. apríl.

Nánar má lesa um námið hér

///

Magnea Árnadóttir graduated with a master's degree in corporate finance from the department of business administration at Reykjavík University's in 2021. Since then she has held a job of a financial director at Motus. She strongly recommends the program to others, whether they are individuals coming directly from undergraduate studies or with experience in the job market.

I was very happy with the program and felt that it both deepened and broadened my knowledge of finance. The composition of the teachers was diverse, which increased the quality of learning and gave both a good insight into the working life and domestic and foreign markets, as well as being academic. I strongly recommend the program to others, whether they are individuals coming directly from undergraduate studies or with experience from the field.

The application deadline for master's programmes is April 30th.

Here you can read more about the master´s programme in corporate finance 

17. apríl 2023
Nýjustu fréttirnar