Mikilvæg umræða um hvar lögin og lögfræðin standa varðandi gervigreind
Ráðstefnan Lög og gervigreind: lögfræðin er mætt til leiks, var haldin í sl. viku í Hörpu á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Bentt. Þar fjölluðu íslenskir og erlendir sérfræðingar um samspil laga og gervigreindar frá ýmsum sjónarhornum með áherslu á lögfræðileg álitaefni sem hafa komið upp sem og komandi löggjöf og þróun á þessu sviði.
Uppselt var á ráðstefnuna en hana sóttu ríflega 200 manns. Dr. Gunnar Þór Péturson, forseti lagadeildar, er að vonum ánægður með daginn. Hann segir háskólasamfélagið m.a. hafa þeim skildum að gegna að stuðla að fræðslu og upplýstri samfélagsumræðu og ráðstefnan sé hluti af áherslum lagadeildar á þessu sviði.

Við í lagadeild HR höfum þegar aukið áherslu á námsframboð og rannsóknir, sem taka mið af því að stafræn tækni og gervigreind, eru að þættast við æ fleiri svið atvinnulífs og samfélags. Það er mikilvægt að hefja umræðuna um hvar lögin og lögfræðin standa í þessu mikilvæga samfélagsmálefni sem gervigreindin er. Þetta er aðeins fyrsta skrefið og við áformum frekari viðburði á næstu misserum. Að auki er nauðsynlegt að lögfræðingar kynni sér tölvutæknina vel og öfugt. Á þeim grunni hafa laga- og tölvunarfræðideildir HR hafið samstarf þar sem við munum deila þekkingu og reynslu milli deilda og námskeiða.
Berglind Einarsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur í gervigreind og stofnandi Bentt, tekur undir orð Gunnars og segir ráðstefnuna hafa gengið vonum framar.

Það er svo mikilvægt að byggja brú milli lögfræði og gervigreindar. Samstarf Lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Bentt og ráðuneytisins gekk vel og var lærdómsríkt fyrir okkur öll. Það var magnað að taka á móti svo stórum hópi en í salnum voru samankomnir aðilar frá öllum stærstu hagsmunaaðilum atvinnulífsins, auk ríkisstofnana og sveitarfélaga. Þá var okkur mikill heiður að því að Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, sæi sér fært að slá botninn í ráðstefnuna. Það undirstrikar mikilvægi málaflokksins.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, flutti lokaorð ráðstefnunnar.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra lokaði ráðstefnunni og sagðist í ræðu sinni vilja nýta tækifærið til að hvetja til þess að fleiri slíkir viðburðir yrðu haldnir.
Ef við ætlum okkur að sækja fram í gervigreind eins og ríkisstjórnin hefur boðað þá þurfum við fleiri hendur á dekk enda eru verkefnin og úrlausnarefnin ekki af skornum skammti. Þetta er nefnilega ekki samtal eða vinna sem á sér bara stað innan veggja ráðuneytisins. Þetta er verkefni samfélagsins alls; samstarf hins opinbera, fyrirtækja og háskólasamfélagsins.
Fundarstjóri var Berglind Einarsdóttir en Gunnar Þór opnaði ráðstefnuna og kynnti dagskrána.
Dagsetning
Deila