Nemendur kynna sér alþjóðleg tækifæri á Alþjóðadegi HR
Það var líf og fjör í HR í þegar Alþjóðadagur HR var haldinn hátíðlegur. Áhersla var lögð á að kynna skiptinám, framhaldsnám erlendis, styrki og önnur alþjóðleg tækifæri.

Þá buðu erlendir skiptinemar í HR íslenskum nemendum að smakka rétti frá heimalöndum sínum og veittu upplýsingar um heimaskóla sína sem eru samstarfsskólar HR. Gafst þar nemendum kjörið tækifæri á að fá upplýsingar frá fyrstu hendi og kynnast þeim fjölbreytta hópi erlendra nemenda sem stundar nám við HR.

Við hlökkum alltaf mikið til alþjóðadagsins og fáum fjölda gesta úr nemenda- og starfsmannahópi HR. Það er mikill metnaður meðal þátttakenda í að skreyta básana, við sjáum ferðatösku, legókubba, reiðhjól, kínverskar grímur og blævængi og svo má ekki gleyma öllu þessu gómsæta alþjóðlega snakki. Alþjóðadagurinn er örugglega litríkasti viðburður HR.
Segir Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðumaður alþjóðasviðs HR.

Það er Alþjóðasvið HR sem stóð að Alþjóðadegi HR en hann var hápunktur alþjóðaviku þar sem ýmis tækifæri í námi erlendis voru kynnt fyrir nemendum.
Hlutverk alþjóðasviðs HR er m.a. að hvetja og styðja við nemendur og starfsfólk sem vilja öðlast alþjóðlega reynslu í háskólanámi og starfi, bæði þau sem fara út sem og þau sem koma til Íslands til lengri eða skemmri tíma.
Dagsetning
Deila