Námið
Rannsóknir
HR
4. febrúar 2026

Nemendur taka á móti viðurkenningum á forsetalistaathöfn í HR

Nemendur tóku á móti viðurkenningum fyrir góðan námsárangur í gær á forsetalistaathöfn í HR. Að þessu sinni voru það 63 nemendur sem komust á forsetalista og tveir nemendur sem tóku á móti námsstyrk Háskólagrunns.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp við athöfnina.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp við athöfnina. Hún fjallaði um mikilvægi þess að ná árangri en minnti um leið á kröfur og forgangsröðun væri í hendi nemendanna sjálfra. Þá talaði hún um hlutverk HR sem er að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina: „Og við sinnum því með því að skapa og miðla þekkingu - og mennta fólk sem samfélagið þarf á að halda. Við gleðjumst þess vegna ekki bara með ykkur yfir árangrinum ykkar heldur erum við líka montin af honum því hann sýnir að við miðlum vel og að okkur er að miða í því að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina með því að tryggja fólk sem kann vel það sem þarf að kunna. Það er gleðiefni fyrir okkur öll."

Karen Nordquist Ragnarsdóttir, flytur ávarp sitt.

Karen Nordquist Ragnarsdóttir, nemi í verkfræði, flutti ávarp fyrir hönd nemenda. Í ræðu sinni sagði Karen m.a. að það væri mannlegt og eðlilegt að efast stundum um eigið ágæti, sumir myndu jafnvel segja að það væri hóflega hollt: „En allir sem ná alvöru árangri vita líka að þar að baki liggur fyrst og fremst mikil vinna.Þetta þarf ég ekkert að útskýra fyrir þessum hóp sem hér er saman kominn. Forsetastyrkurinn fellur aðeins í skaut afburðanemendum og fæstir hafa þá náðargáfu að drekka þekkingu með móðurmjólkinni. Allt afburðafólk veit að það þarf að leggja mikið á sig til að ná settu marki en þá er árangurinn oft eftir því og ánægjan að loknu góðu dagsverki einlæg og sönn."

Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta stýrði athöfn og deildarforsetar afhentu nemendum viðurkenningarnar. Forsetastyrkir eru veittir nemendum sem bestum árangri ná á hverri önn og fá þeir þannig skólagjöld næstu annar felld niður.

4. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar