Nýtt sumarnámskeið fyrir nemendur á vegum NeurotechEU
Í sumar verður í boði nýtt sumarnámskeið sem hannað er fyrir meistara- og doktorsnema í sálfræði, taugavísindum og heilbrigðistækni eða lífeðlisfræðilegri verkfræði.
Námskeiðið ber heitið; Summer School of Applied Psychophysiology and Biofeedback: Translating Evidence into Practice en þar verður í brennidepli hagnýt, lífeðlisleg sálfræði með sérstakri áherslu á hjartsláttarbreytileika (HRV) og líffræðilega endurgjöf (biofeedback).
Er það þróað í samvinnu með NeurotechEU samstarfsháskólunum Karolinska Institutet og Radboud University og verður kennt bæði í net- og staðarkennslu í HR.
Námskeiðið hefst á netinu með kynningu, grunnhugtökum, teymismyndun og gagnvirkri hópkennslu. Að því loknu tekur við vika í staðarnámi sem tileinkuð er rannsóknarvinnu í HRV, samvinnutilraun í teymi og fyrirlestrum frá sérfræðingum um líffræðilega endurgjöf og hagnýta notkun þess. Síðasti áfanginn er kenndur á netinu og snýr hann að gagnagreiningu, skýrslugerð og kynningum. Í loka lotunni er síðan allt það helsta úr námskeiðinu dregið saman til að festa þekkingu nemenda enn frekar í sessi.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl. Nánari upplýsingar og skráning er á Canvas.
Dagsetning
Deila