Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
21. ágúst 2026

Prófessorar við lagadeild HR tóku saman álitsgerð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

Dr. Gunnar Þór Pétursson, dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson og dr. Margrét Einarsdóttir, prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hafa að beiðni ríkisstjórnarinnar tekið saman álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum o.fl. í ljósi reglna Evrópuréttar.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að álitsgerðin hafi verið unnin í sumar og að umfang hennar taki mið af því að æskilegt væri talið að hún lægi fyrir í tæka tíð fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.

Helstu meginatriði og punkta úr álitsgerðinni má lesa hér.

21. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar