Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. október 2026

Sjö háskólar NeurotechEU háskólanetsins bjóða upp á meistaranám í taugatækni (e. European Master in Neurotechnology)

NeurotechEU, samstarfsnet níu háskóla frá jafnmörgum löndum, hefur komið á fót nýrri sameiginlegri meistaranámsleið, European Master in Neurotechnology (EMN). Námið verður í boði við nýstofnaða taugavísinda- og heilbrigðistæknideild Háskólans í Reykjavík, sem tekur formlega til starfa í nóvember og hefur kennslu haustið 2027, og leiðir til sameiginlegrar meistaragráðu í taugatækni.

Að nýju gráðunni standa sjö af háskólunum níu, þeirra á meðal HR, sem saman mynda NeurotechEU. Hinir háskólarnir sex sem standa að gráðunni eru Radboud háskólinn í Nijmegen í Hollandi, Miguel Hernández háskólinn í Elche á Spáni, Rheinische Friedrich-Wilhelms háskólinn í Bonn í Þýskalandi, Boğaziçi háskólinn í Istanbúl, Cluj-Napoca háskólinn í Rúmeníu og háskólinn í Lille í Frakklandi.

Nýja EMN-gráðan hlaut nýverið jákvæða umsögn frá úttektarnefnd Hollensku og flæmsku faggildingarstofnunarinnar (NVAO). Um er að ræða mikilvægan áfanga fyrir NeurotechEU og mikla viðurkenningu á samstarfi háskólanna sjö.

Nemendur geta ferðast á milli háskóla

EMN-gráðan sameinar taugavísindi, verkfræði, tölvunarfræði og siðferðileg sjónarmið í þverfaglegu námi sem er hugsað fyrir næstu kynslóð sérfræðinga á sviði taugatækni.  Námið mun þannig veita þverfaglega þjálfun á einu af þeim sviðum sem eru að vaxa hvað hraðast á mótum taugavísinda, læknisfræði, gervigreindar og verkfræði: taugatækni.

Nemendum mun standa til boða að taka námskeið, sinna rannsóknatengdu starfsnámi og vinna að meistararitgerð sinni við samstarfsháskólana. Einnig verður lögð áhersla á verkefnamiðað nám og nýsköpun.

„Í náminu munu nemendur njóta góðs af því að læra að brúa bilið á milli ólíkra fræðasviða, þvert á marga evrópska háskóla, og munu eiga í samskiptum við leiðandi vísindamenn og nýsköpunarvistkerfi ásamt því að þróa með sér færni sem er sífellt meiri eftirspurn eftir innan háskólasamfélagsins, heilbrigðisþjónustunnar og taugatækniiðnaðarins,“ segir Nick F. Ramsey, formaður akademískrar námsnefndar EMN.

Gráðan skiptist í fjögur meginsvið

EMN-gráðan er 120 ECTS-eininga nám sem kennt er á ensku yfir tveggja ára tímabil. Námið skiptist í fjögur meginsvið: heilakerfi, klínísk fræði, tækni og gagnavísindi. Lögð er sérstök áhersla á siðferðileg, lagaleg og samfélagsleg sjónarmið. Markmiðið er að búa nemendur undir að þróa ábyrgar lausnir á fræðasviði sem er að þróast með örum hætti.

NeurotechEU leggur áherslu á taugatækni, nýtt og ört vaxandi fræðasvið sem sameinar læknisfræði, gervigreind og tækni með áður óþekktum hætti. Starfsemin nær yfir nýjustu rannsóknir, sérhæft nám, hagnýtingu og yfirfærslu þekkingar til atvinnulífsins, auk siðferðilegrar innleiðingar þessara framfara í samfélagið.

Nánari upplýsingar um gráðuna má finna á heimasíðu NeurotechEU.

8. október 2026
Nýjustu fréttirnar