Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
23. nóvember 2026

Skema með námskeið um heilbrigða tölvunotkun barna

Skema býður upp á stafræna námskeiðið Heilbrigð tölvunotkun barna, sem er ætlað foreldrum, kennurum, leiðbeinendum og öðrum sem vilja öðlast betri skilning á stafrænum heimi barna og styðja þau í að nýta tæknina á öruggan, heilbrigðan og uppbyggilegan hátt.

Námskeiðið er afrakstur þverfaglegs samstarfs innan Háskólans í Reykjavík þar sem sérfræðingar á sviði íþróttafræði, sálfræði, lögfræði, netöryggis og tæknimenntunar sameina krafta sína til að veita foreldrum fræðslu og hagnýt verkfæri.

Námskeiðið er að öllu leyti stafrænt með engum föstum dagsetningum og geta þátttakendur því nálgast námsefnið þegar þeim hentar og farið yfir það á eigin hraða.

Sérfræðingar úr ólíkum deildum HR koma að námskeiðinu og nálgast viðfangsefnið hver út frá sínu fræðasviði.

Fjölbreytt sérþekking á einum stað

Katrín Ýr Friðgeirsdóttir lektor, Hjalti Rúnar Oddsson kennari og Sveinn Þorgeirsson lektor við íþróttafræðideild HR fjalla um líkamlega heilsu barna í tengslum við tölvunotkun, meðal annars næringu, hreyfingu, svefn, líkamsbeitingu og mögulegan ávinning af rafíþróttum.

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir og Þórhildur Halldórsdóttir, dósentar við sálfræðideild HR, fjalla um áhrif hönnunar samfélagsmiðla á hegðun, uppbyggjandi og jákvæð samskipti á netinu og skapofsa í tölvuleikjum og stafrænum samskiptum.

María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild HR, og Vigdís Helga Eyjólfsdóttir, sérfræðingur í netöryggi, fjalla meðal annars um ábyrgð og aldurstakmörk samfélagsmiðla, persónuvernd, öryggisbresti, netsvindl og vafasamt efni á netinu. Vigdís Helga hefur komið að starfi Frostbyte, rannsóknastofu fyrir nemendur HR og HÍ á sviði netöryggis.

Úlfur Atlason, fyrrverandi verkefnastjóri Skema við HR og sérfræðingur þegar kemur að tækni, sköpun og námi, fjallar um ólíkar tegundir skjátíma, tölvuleiki sem lærdómsumhverfi og hvernig foreldrar geta tekið virkan þátt í stafrænum heimi barna sinna.

Nánari upplýsingar og skráningu fyrir Heilbrigða tölvunotkun barna er að finna hér.

23. nóvember 2026
Nýjustu fréttirnar