Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
12. maí 2026

Sprotafyrirtækið Humble hlýtur umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn

Humble appið, er snýr að því að minnka matarsóun, hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins nýverið.
Hlynur Rafn Guðmundsson er einn þeirra sem þróaði appið en hann útskrifaðist með meistaragráðu úr stjórnun nýsköpunar frá viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík árið 2022.

Hann mælir heilshugar með námi við Háskólann í Reykjavík sem hann segir vera hagnýtt og hafa stutt við framför hans bæði í vinnu og einkalífi.

Það stendur upp úr í náminu að ég gat nýtt mér strax það sem ég lærði við að koma eigin fyrirtæki á fót. Í dag er Humble komið með tæplega 40.000 notendur og 125 útsölustaði um land allt. Markmið fyrirtækisins er að halda áfram að bæta við fleiri stöðum og þróa vöruna og þjónustuna enn frekar með það að leiðarljósi að minnka matarsóun og bjóða fólki mat á hagstæðara verði.

Segir Hlynur Rafn og bætir við að á þessari vegferð hafi þau sem stofnuðu saman fyrirtækið lært gríðarlega mikið, bæði um almennan rekstur, fjármögnun, tengslamyndun og annað sem skiptir máli þegar sprotafyrirtæki er byggt upp á Íslandi.

Það hefur líka komið okkur skemmtilega á óvart hversu gott umhverfið hér á landi er fyrir nýsköpun. Hér er öflugt stuðningsumhverfi og fólk almennt opið fyrir nýjungum og tilbúið að hjálpa.

Segir Hlynur Rafn en framundan hjá Humble er áframhaldandi vöxtur, fjölgun samstarfsaðila og frekari þróun á lausnum sem hjálpa bæði fyrirtækjum og neytendum að draga úr matarsóun á einfaldan og aðgengilegan hátt.

12. maí 2026
Nýjustu fréttirnar