Stórt skref og valdeflandi að velja sér háskólanám
Það er stórt skref og valdeflandi að velja sér háskólanám. Eftir útskrift úr menntaskóla eru nemendur á þeim tímamótum að geta valið sér næstu skref til framtíðar algjörlega eftir eigin höfði.
Í öllu námi við Háskólann í Reykjavík er lögð áhersla á sterka tengingu við kennara og atvinnulífið. Kennarar eru aðgengilegir og margir með mikla reynslu úr atvinnulífinu sem gerir námið bæði hagnýtt og raunverulegt. Það skapar tækifæri til að byggja upp tengsl og reynslu strax í upphafi náms.

Það sem ég hef líklega lært mest af minni reynslu í HR er mikilvægi þess að þora að stíga út fyrir þægindarammann. Taka þátt í einhverju nýju, mæta á viðburði eða einfaldlega fylgja eftir því sem manni virkilega langar til þess að gera. Oft eru bestu minningarnar og sterkustu tengslin tilkomin einmitt þannig. Það er alveg eðlilegt að finna fyrir stressi og spenningi við upphaf háskólanáms en ég fann það fljótt hversu auðvelt það er að kynnast fólki í HR og verða hluti af samfélaginu.
Segir Rúnar Gauti Gunnarsson, BSc í Viðskiptafræði og forseti SFHR (Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík) skólaárið 2026-2027.
Verða fljótt hluti af HR samfélaginu
Nemendur í HR hafa ótal tækifæri til að kynnast samnemendum sínum, verða hluti af HR samfélaginu og mynda dýrmæt tengsl fyrir framtíðina. Rúnar Gauti bætir við að félagslífið sé einn stærsti styrkleiki HR og þar gegna SFHR og aðildarfélög þess stóru hlutverki. Á hverju ári eru haldnir fjölbreyttir viðburðir þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar má nefna nýnemadaga, ólympíuvikuna, árshátíðir nemendafélaganna á haustönn og glæsilega árshátíð SFHR á vorönn. Þess utan er ætíð líf og fjör innan skólans og auðvelt að hitta nýtt fólk, bæði í námi og félagslífi.
Ég hvet alla nýnema til að nýta tímann vel, prófa nýja hluti og leyfa sér að taka þátt. Háskólanám getur gefið manni miklu meira en bara gráðu,ef maður er tilbúinn að taka þátt í öllu sem maður hefur áhuga á og grípa tækifærin þegar þau gefast.
Segir Rúnar Gauti.
Opið hús verður í Háskólanum í Reykjavík, þriðjudaginn 26. maí 2026 frá klukkan 15:00-17:00. Þar munu kennarar, nemendur og starfsfólk taka vel á móti gestum og kynna fyrir þeim allt grunnnám við HR. Einnig verða meðlimir SFHR á staðnum og taka vel á móti þeim sem íhuga næstu skref.
Dagsetning
Deila