Taktíkin bar sigur úr bítum í Vitanum
Úrslitadagur Vitans, hugmyndasamkeppni HR og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), fór fram laugardaginn 14. febrúar. Liðið Taktíkin bar sigur úr býtum og heldur til Barcelona í vinningsferð nú á vormánuðum.

Liðið Taktíkin skipa þau Berglind Hrönn Úlfarsdóttir og Brynhildur Lilja Kristjánsdóttir, lögfræðinemar og Eiður Áki Arnarsson og Matthías Jens Ármann nemendur í hagfræði og fjármálum.

Áskorun nemenda í Vitanum snerist um það að markaðssetja íslenskan lax á spænskum markaði en það var Iceland Seafood sem setti áskorunina fram og Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild, sem samdi verkefni fyrir þátttakendur Vitans. Tíminn er knappur því liðin hafa aðeins fjóra daga til að þróa og útfæra lausnir sínar sem gerir áskorunina enn meira spennandi.
Mikilvæg reynsla í að umbreyta hugmynd í eitthvað áþreifanlegt
Með þátttöku segjast liðsfélagarnir hafa öðlast mikilvæga reynslu í að taka þátt í að umbreyta hugmynd og sýn í eitthvað áþreifanlegt en þau gerðu prufutýpur af pakkningum sem vakti sérstaka lukku hjá dómnefnd. Eins hafi verið góð reynsla að vinna saman þvert á deildir og kynnast nýju fólki og aðferðum. Hópefli var haft í hávegum hjá liðinu sem mun halda áfram að þétta hópinn og vinna í hugmyndinni þar til þau halda til Barcelona í mars.
Sigurvegararnir hljóta í verðlaun ferð til Barcelona með fulltrúum HR þar sem þeir fá einstakt tækifæri til að fylgja vörunni alla leið, frá útflutningi til dreifingar, sölu og að lokum á disk neytenda. Heimsóknir til samstarfsaðila, birgja, verslana og veitingastaða veita þannig dýrmæta innsýn í alla virðiskeðjuna í raunverulegu umhverfi.
Liðin kynntu úrlausnir sínar fyrir dómnefnd en í henni sátu; Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs HR, Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild HR, Steinar Þór Ólafsson frá SFS og Neil Shiran Þórisson, f.h. Iceland Seafood.
Liðin sem kepptu í ár voru 9 og voru eftirfarandi; Knarrarós, KOST, Haf-Lausnir, Vitanlega, Taktíkin, LP Simplex, STRAUMUR, Artic Revolution og Norðurperlurnar.
Vitinn hefur verið haldinn árlega síðan árið 2015 og er keppnin opin öllum nemendum HR, þvert á deildir í grunnnámi og/eða meistaranámi. Keppnin snýst um að þróa og útfæra lausnir fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi.
Dagsetning
Deila