Þorrablót fyrir erlenda skiptinema

Erlendir skiptinemar sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík þessa vorönn fengu að kynnast íslenskri menningu á Þorrablóti. Boðið var upp á hefðbundinn þorramat ásamt heimalöguðum jafningi sem var skolað niður með malti og appelsíni.

Eftir hvern rétt giskuðu skiptinemarnir á hvað þau höfðu í sig látið og gekk þeim misvel að bera kennsl á réttina. Óhætt er að segja að maturinn hafi fallið misvel í kramið hjá skiptinemunum en þó var einhugur um að reynslan væri dýrmæt, þótt ekki sæu öll fyrir sér að endurtaka leikinn.

Hópur mentora, sem samanstendur af nemendum við Háskólann í Reykjavík, hafa verið alþjóðasviði innan handar það sem af er skólaárinu og lagt kapp á að gera dvöl erlendu skiptinemanna sem best lukkaða. Mentorahópurinn stóð fyrir blótinu sem var haldið í fyrsta sinn, en vonandi ekki í síðasta sinn.
Dagsetning
Deila