Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. júní 2026

Þverfagleg nálgun í brennidepli: Ný sýn á áhættumat í heimilisofbeldi

Föstudaginn 5. júní fór fram málþing og vinnustofa á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík um miðlun persónuupplýsinga í tengsl við gerð áhættumata í ofbeldismálum. Dr. María Rún Bjarnadóttir stóð að málþinginu en það var haldið í samstarfi við Bjarkarhlíð.

Belgísku sérfræðingarnir Pascale Franck og Dries Wyckmans fluttu erindi um fyrirkomulag áhættumats í heimilisofbeldismálum í Belgíu, sem byggir á þverfaglegri nálgun og samhæfðum skilningi á áhættuþáttum ofbeldis. Þau hafa sérhæft sig í þjónustu við þolendur og gerendur ofbeldis.

Pascale Franck

Þau gegna bæði leiðandi hlutverkum í evrópsku samstarfsneti um þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Á meðan dvöl þeirra á landinu stóð heimsóttu þau allar fjórar þjónustumiðstöðvar við þolendur á landinu; Bjarkarhlíð, Sigurhæðir, Suðurhlíð og Bjarmahlíð.

Dries Wyckmans

Í erindum sínum fjölluðu þau um mikilvægi þess að áhættumöt séu unnin á grundvelli upplýsinga ólíkra aðila og að sérstakri athygli sé beint að skilgreindum áhættuþáttum og hugsanlegum verndandi þáttum við gerð þeirra. Þar skipti máli að heildrænt mat á fyrirliggjandi upplýsingum sé svo nýtt með markvissum hætti til þess að koma í veg fyrir ofbeldi og grípa til viðeigandi úrræða til þess að stöðva ofbeldishegðun- og mynstur.

Þau fjölluðu um nýtt samhæft stafrænt kerfi, WIDA, sem belgískar þjónustumiðstöðvar við þolendur ofbeldis hafa nú tekið í gagnið og nýta til þess að deila upplýsingum á milli viðeigandi aðila vegna heimilisofbeldismála. 

Þá flutti Sædís Jana Jónsdóttir verkefnastjóri áhættugreininga hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu einnig erindi. Hún fjallaði um fyrirkomulag og greiningarþætti sem stuðst er við í gerð áhættumata vegna heimilisofbeldis hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og þær áskoranir sem staðið er frammi fyrir við notkun áhættumatstækja vegna heimilisofbeldis á Íslandi.

Að lokum var haldin skrifborðsæfingu þar sem farið var í gegnum raunhæf dæmi við gerð áhættumats með aðkomu þátttakenda.

Viðburðurinn var haldinn í samvinnu lagadeildar HR og Bjarkarhlíðar í framhaldi af málþingi sem lagadeild HR stóð fyrir 20. apríl sl. Þar sem fjallað var um miðlun persónuupplýsinga í tengslum við heimilisofbeldi þar sem sjónum var sérstaklega beint að ákvæðum laga um þagnarskyldu fagstétta.  Viðburðurinn var sendur út í streymi og var vel sóttur.

8. júní 2026
Nýjustu fréttirnar