Total Tempo og íþróttafræðideild HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu í íþróttavísindum og þjálfun
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Staðan er kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Total Tempo og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2026 og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkvæmt skóladagatali.
Um Total Tempo:
Total Tempo er tæknifyrirtæki sem þróar samþætt þráðlaust kerfi fyrir fótboltaþjálfun. Kerfið samanstendur af snjallkeilum, mörkum og öðrum tengdum einingum sem skapa dýnamískt æfingaumhverfi á vellinum. Búnaðurinn birtir stýrð ljósmerki sem líkja eftir raunverulegum leikaðstæðum og framkalla skilgreind viðbrögð hjá leikmönnum. Markmið kerfisins er að veita þjálfurum vettvang til að hanna og framkvæma æfingar sem þjálfa umhverfisgreind, viðbragðstíma og ákvarðanatöku á mælanlegan hátt.
Total Tempo er eigandi Batta, einkaþjálfunarstöðvar sem sérhæfir sig í einstaklingsmiðaðri fótboltaþjálfun. Þar er kerfið notað kerfisbundið í daglegri þjálfun til að þróa leikmenn og prófa nýja virkni í raunverulegu þjálfunarumhverfi.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist Total Tempo. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við Total Tempo og leiðbeinanda frá HR. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum Total Tempo.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á iðkendum Total Tempo undir handleiðslu þjálfarateymis Total Tempo og kennara íþróttafræðisviðs HR meðan á námstíma stendur.
- Total Tempo getur óskað eftir því að nemandi sjái um fræðslu eða ráðgjöf innan Total Tempo. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við knattspyrnu og veita Total Tempo aðgang að verkefnum sínum. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá Total Tempo sem hluta af námi sínu.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.
Smelltu hér til að kynna þér MSc í íþróttavísindum.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til Hjalta Rúnars Oddssonar, hjaltio@ru.is.
Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá.
Dagsetning
Deila