Virði og frumkvæði íþróttakennara í brennidepli á haustmóti HR
Árlegt haustmót íþróttakennara fór fram á vegum íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík föstudaginn 21. ágúst sl. Á meðal umfjöllunarefna á mótinu var jaðarsetning og einangrun íþróttakennara; að þeir upplifi mikilvægi og virði í starfi sínu.
Fjallað var um niðurstöður rannsóknar á jaðarsetningu og einangrun íþróttakennara sem dr. Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild HR, vann ásamt dr. Inga Þór Einarssyni, starfandi deildarforseta íþróttadeildar, og samstarfsfólki þeirra frá Tyrklandi.
„Rannsóknin á erindi beint til íþróttakennara og byggir á samanburði við kollega þeirra í Tyrklandi. Þar komu fram mjög áhugaverðar niðurstöður. Þetta er líklega aðeins þriðja ritrýnda greinin um skólaíþróttir á Íslandi.
Meðal þess sem fram kom er að íslenskir íþróttakennarar upplifa minna virði og meira álag í starfi en tyrkneskir. Það sem er mikilvægt fyrir framtíðina er að við kennarar látum betur vita af því sem við erum að gera, auk þess sem stjórnendur mega gjarnan innvinkla fagið og kennarana betur, veita þeim athygli og gera starf íþróttakennara sýnilegt innan skólanna,“ segir Sveinn.

Sveinn flutti erindi um Bæti, verkefni Kjartans Stefánssonar í námsefnisgerð, vegna forfalla Kjartans. Bætir er námsforrit fyrir síma.
Stöndum sífellt frammi fyrir breytingum
Í síðari hluta haustmótsins fór fram pallborðsumræða sem Kristján Halldórsson, aðjúnkt við íþróttafræðideild HR, stýrði. Þar var fjallað um þær breytingar sem íþróttakennarar í Réttarholtsskóla eru að gera á sundkennslu við unglingadeild til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem kennararnir búa við.
Hulda Bjarkar, íþrótta- og sundkennari í Réttarholtsskóla, flutti inngang fyrir pallborðsumræðuna þar sem hún útskýrði þær breytingar sem ráðist hefur verið í við sundkennslu við unglingadeild skólans.
Breytingarnar fela í sér að sund verður kennt allt skólaárið í 8. bekk og nemendur fá lokamat í lok ársins. Því verður ekki lengur kennt sund í 9. og 10. bekk. Í stað kynjaskiptingar eins og verið hefur munu tveir kennarar kenna hverjum bekk í senn. Breytingarnar eru m.a. hugsaðar til þess að nýta betur sundtíma, minnka álag á sundlaugar og til að einfalda skipulag skólans.
„Mjög góðar umræður spruttu upp úr þessu. Við stöndum sífellt frammi fyrir breytingum. Þetta er gott dæmi um hvernig íþróttakennarar geta sýnt frumkvæði, leitað lausna við aðstæðum og mótað umhverfi sitt og skipulag. Við reynum að taka smá forystu í þessum málum og leggja okkar af mörkum til umræðunnar,“ segir Sveinn.
Rúmlega þrjátíu íþróttakennarar tóku þátt í vel heppnuðu haustmótinu og áætlað er að halda annað mót íþróttakennara í vetur, þar sem uppi eru hugmyndir um að gefa leikskólastiginu pláss eftir áramót. Fjallað yrði um verkefni sem tengjast starfi þeirra og kennarar fengnir til að flytja erindi sem tengjast áfanga um hreyfingu barna á leikskólaaldri.
Dagsetning
Deila