BIM og -upplýsingatækni í mannvirkjagerð
Hvað læri ég?
Hagnýtt nám fyrir atvinnulífið
BIM og upplýsingatækni í mannvirkjagerð er hagnýtt 30 ECTS eininga örnám sem er sniðið að
þörfum atvinnulífsins. Í náminu öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin
og þverfagleg vandamál og stjórna verkefnum með notkun upplýsingalíkana í
mannvirkjagerð (BIM – Building Information Model) og annarrar upplýsingatækni sem nýttar
eru í byggingariðnaði.
Upplýsingalíkön (BIM líkön) auka gæði hönnunar og framkvæmda og stuðla að hagkvæmari
byggingum. Þá nýtast þau við rekstur mannvirkja á líftíma þeirra. Aðrar stafrænar lausnir
sem notaðar eru í byggingariðnaði, eru t.a.m. stjórnun gagna, skilgreiningar á skilalýsingum á
gögnum og skjölum, stafrænir ferlar og stafræn skjalastjórnun. Á síðastliðnum árum hafa
kröfur í verkefnum aukist töluvert og kallar á aukna þekkingu og færni á meðal starfsfólks á
öllum stigum í mannvirkjagerð, frá hönnun og framkvæmd til reksturs og niðurrifs.
Í þessu hagnýta námi öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin og þverfagleg vandamál í mannvirkjagerð og stjórna verkefnum með stafrænum lausnum og BIM (Building Information Model).
Námið hentar sérstaklega vel þeim sem starfa í byggingariðnaði og við mannvirkjagerð. Má þá nefna byggingarstjóra, byggingariðnfræðinga, tæknifræðinga, verkfræðinga, arkitekta og byggingafræðinga. Námið hentar einnig þeim sem vilja sérhæfa sig í þeim stafrænu umbreytingum sem nú eiga sér stað.
Fjórða iðnbyltingin í mannvirkjagerð
Notkun stafrænna þrívíðra upplýsingalíkana er aðferðafræði við hönnun mannvirkja sem hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Hún eykur gæði hönnunar og framkvæmda og stuðlar að hagkvæmari byggingum með tilliti til rekstrar og líftíma.
Upplýsingatækni í mannvirkjagerð býður upp á ótal möguleika í hagræðingu og virðissköpun fyrir byggingariðnaðinn í heild sinni.
Aukin gæði og hagkvæmni
Hagnýting og innleiðing á upplýsingatækni og notkun á líkönum í mannvirkjagerð gefur fyrirtækjum í mannvirkjagerð ótal möguleika á að betrumbæta eigin þjónustu, eiga samstarf við aðra hagaðila innan byggingariðnaðarins og styrkja stöðu sína á erlendum markaði.
Tæknifræðideild HR
HR útskrifar flesta nemendur í tæknigreinum á háskólastigi á Íslandi. Í tækninámi við HR er lögð sérstök áhersla á verklega hluta námsins við kennslu undirstöðugreina og hagnýtra fag- og tæknigreina. Tæknifræðideild er aðili að alþjóðlegu samstarfsneti um þróun tæknináms sem kallast CDIO (e. Conceive, Design, Implement, Operate). Í netinu eru um 100 framsæknir háskólar og megináhersla er lögð á gæði náms í tæknigreinum með því að setja undirstöðugreinar í samhengi við raunveruleg viðfangsefni.
Hvernig læri ég?
Örnám í BIM og upplýsingatækni í mannvirkjagerð í tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík er
eins árs nám sem skipulagt er sem 2 annir með vinnu. Til að ljúka náminu þarf að ljúka 30
ECTS einingum, þar af 24 ECTS af skyldunámskeiðum og lokaverkefni sem er 6 ECTS. Á fyrri
önn taka nemendur 4 námskeið og á annarri önn 3 námskeið og /ásamt lokaverkefni.
Hagnýtt nám fyrir atvinnulífið - 30 ECTS
Upplýsingalíkön mannvirkja (BIM – Building Information Model) gera aðilum í byggingariðnaði mögulegt að nýta möguleika upplýsingatækni á sviði hönnunar, framkvæmda og reksturs, með úrbætur og gæði að leiðarljósi.
Í þessu hagnýta námi öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin og þverfagleg vandamál í mannvirkjagerð og stjórna verkefnum með stafrænum lausnum og BIM (Building Information Model) - upplýsingalíkönum í mannvirkjagerð.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur skulu hafa lokið einhverju af neðantöldu:
Umsækjendur skulu hafa lokið námi í eftirfarandi grein og jafnframt hafa 3ja ára reynslu í
faginu:
- burtfararprófi í iðngrein á byggingarsviði
- tækniteiknaranámi,
- iðnfræði,
eða hafa lokið námi í - byggingafræði,
- tæknifræði,
- verkfræði,
- arkitektanámi.
Að auki þurfa nemendur að hafa lágmarksþekkingu á hönnunartóli með BIM stuðningi, svo
sem Revit eða Tekla Structures og/eða reynslu í BIM studdu verkefnaumhverfi. Undir
lágmarksþekkingu telst til dæmis að að geta útbúið BIM líkan af byggingu á stigi
aðaluppdrátta.
Að námi loknu
Notkun líkana, samningagerð og stjórnun gagna
Að námi loknu eiga nemendur að þekkja sögu, meginreglur, aðferðir og verklag sem liggur að
baki BIM og UT í mannvirkjagerð og hvernig þeim er beitt á mismunandi stigum. Þar sem
námið er hagnýtt læra nemendur að opna, rýna, bæta við og nýta sér líkön. Þeir læra helstu
aðgerðir, getu líkana, helstu staðla og takmarkanir, ásamt því að læra stjórnun á stafrænum
gögnum, skrám og ferlum.
Fjallað er um verklag við samningagerð og stjórnun á upplýsingum í hönnun og framkvæmd,
byggingaflokkunarkerfi og hvernig þeim er beitt ásamt starfssviði/hlutverki BIM-stjóra í
verkefnum.
Að hafa umsjón með stafrænum gögnum er nauðsynlegt á komandi árum enda nýtast
gagnabankar í öllum atvinnugreinum, ekki síst til ákvörðunartöku. Í þessu örnámi læra
nemendur að stjórna og halda utan um gögn og samskipti í mannvirkjagerð. Jafnframt er
kennt hvernig megi nota BIM-studda hugbúnaði til að ná fram settum markmiðum.
Hefur þú spurningar um námið?
Skipulag náms
Námið er kennt samhliða vinnu. Kennt er tvo eftirmiðdaga í viku kl. 16:00 - 19:00 í húsnæði HR við Nauthólsvík. Ekki er boðið upp á fjarnám.
Námið er kennt í lotum, það er eitt námskeið er kennt í einu út önnina. Önnin tekur alls 15 vikur og hefst haustönn um miðjan ágúst og lýkur í enda nóvember. Vorönn hefst í byrjun janúar og lýkur í maí. Nánari upplýsingar um dagatal skólaársins má finna á vef HR.
Aðstaða
Þjónusta og góður aðbúnaður
Í háskólabyggingu HR er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
Kennslustofur og lesaðstaða
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.
Kennarar
Af hverju upplýsingatækni í mannvirkjagerð?
- Háskólanám sem veitir 30 ECTS einingar
- Nemendur læra af sérfræðingum úr atvinnulífinu
- Góð aðstaða








